Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. febrúar 2026 22:13 Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi. Vísir/Vilhelm Af þeim 23 ábendingum og tillögum til úrbóta sem Ríkisendurskoðun setti fram fyrir þremur og fjórum árum hefur verið komið til móts við fimm þeirra. Meðal þess sem situr á hakanum er að bæta stöðu kvenkyns fanga og að festa í sessi áætlun um fjárfestingar Landhelgisgæslunnar.
Ríkisendurskoðun kynnti í dag niðurstöður með eftirfylgni með þremur stjórnsýsluúttektum á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Um er að ræða eftirfylgni í kjölfar þriggja skýrslna um Fangelsismálastofnun, Landhelgisgæsluna og Tollframkvæmd vegna landbúnaðarafurða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ríkisendurskoðun en þar er tekið fram að skýrslurnar þrjár séu einungis lítið brot af þeim skýrslufjölda sem embættið skilaði Alþingi á umræddu árabili. Þær voru alls 29. Bæta þurfi stöðu kvenkyns fanga Árið 2023 skilaði Ríkisendurskoðun Alþingi skýrslunni Fangelsismálastofnun - Aðbúnaður, endurhæfing, árangur. Þar voru alls níu ábendingar sem beindust að dómsmálaráðuneytinu, Fangelsismálastofnun, heilbrigðisráðuneytinu og mennta- og barnamálaráðuneytinu. Af fjórum ábendingum á herðum dómsmálaráðuneytisins hefur að hluta til verið komið til móts við tvær ábendingar. Ríkisendurskoðun telur að ábendingunni um að ráðuneytið eigi að vinna hratt að byggingu nýs fangelsis í stað Litla-Hrauns hafi verið svarað að hluta til með áformum um að byggja fangelsið Stóra-Hraun. Þau telja þó að fyrirhugað fangelsi taki ekki mið af þörfinni sem er fyrir hendi. Þá hefur einnig að hluta til verið unnið að ábendingu um að færa rekstur fangelsisbygginga frá Fangelsismálastofnun til Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna og brýnir að flýta fyrir viðræðum um tilfærslu verkefnisins. Hins vegar hefur ekki verið komið til móts við ábendingu um að móta heildstæða stefnu í fullnustumálum né bæta stöðu kvenkyns fanga, meðal annars með sérstökum vistunarúrræðum. Fangelsismálastofnun hefur eflt nám og þjálfun fangavarða í kjölfar skýrslunnar en ekki eflt vinnustaðamenningu Fangelsismálastofnunarinnar sem bregðast þurfi við. Þá hefur að hluta til verið komið til móts við ábendingu um að stofnunin geti ekki með skömmum fyrirvara og án mikillar fyrirhafnar lagt fram upplýsingar um öryggisfrávik. Heilbrigðisráðuneytið hefur ekki komið til móts við ábendingu um að bæta aðgengi fanga að heilbrigðisþjónustu né hefur mennta- og barnamálaráðuneytið lokið vinnu starfshóps um menntun fanga og fangavarða. Þrjár ábendingar á hakanum Ríkisendurskoðun fylgdi einnig eftir skýrslu sinni um Landhelgisgæsluna sem var birt árið 2022. Af þeim níu ábendingum sem beint var til Landhelgisgæslunnar, dómsmálaráðuneytisins, utanríkisráðuneytis og forsætisráðuneytis hefur einungis verið komið að fullu til móts við eina, að tryggja að fyrirkomulag og framkvæmd varnartengdra verkefna sé með þeim hætti að utanríkisráðuneyti sé í viðunandi stöðu til að hafa eftirlit með framkvæmdinni. Þrjár ábendingar sitja enn á hakanum, allar á herðum bæði dómsmálaráðuneytisins og Landhelgisgæslunnar. Ekki hafa verið teknar skýrar og raunhæfar ákvarðanir um verkefni og tækjakost Landhelgisgæslunnar, ekki fest í sessi áætlun um fjárfestingar gæslunnar til langs tíma né eftirlit með landhelginni bætt og viðvera flugvélarinnar aukin. Unnið er að ýmsum könnunum, til að mynda er til skoðunar að breyta samsetningu og nýtingu skipaflota Landhelgisgæslunnar og verið er að kanna kosti þess að Landhelgissjóður verði lagður niður eða sameinaður annarri starfsemi. Einnig eru hagræðingarmöguleikar í rekstri gæslunnar til skoðunar. Þá er verið að vinna að því að setja reglur um nýtingu loftfara í verkefnum óviðkomandi eftirlits- og björgunarstörfum og að hætta að kaupa olíu í Færeyjum. Enn eftir að endurskipuleggja tollaendurskoðun Að lokum var skýrsla um Tollframkvæmd vegna landbúnaðarafurða frá árinu 2022 tekin til skoðunar en þar hefur verið komið að fullu til móts við þrjár af fimm tillögum. Að hluta til hefur verið komið til móts við ábendingu um heildstæða endurnýjun tölvukerfa tollasviðs Skattsins. Hins vegar á alveg eftir að endurskipuleggja og efla tollaeftirlit og tollaendurskoðun. Ríkisendurskoðun fylgir eftir niðurstöðum stjórnsýsluúttekta sinna annars vegar sex til tólf mánuðum eftir að skýrslurnar eru birtar og hins vegar um þremur árum eftir birtingu þeirra. Tilgangurinn er að kanna hvort brugðist hafi verið við ábendingunum.
Ríkisendurskoðun Fangelsismál Rekstur hins opinbera Landhelgisgæslan Tollgæslan Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira