Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 08:53 Fyrirtækið Prosegur rekur meðal annars hraðbanka á nokkrum stöðum á Keflavíkurflugvelli á grundvelli samnings við Isavia sem gildir til 2029. Sveinbjörn Indriðason er forstjóri Isavia. Vísir/vilhelm Trúnaður ríkir um innihald samninga sem Keflavíkurflugvöllur gerir við rekstraraðila í flugstöðinni og sökum þessa getur Isavia ekki veitt upplýsingar um það hvaða skilyrði eru fyrir hendi í samningi flugvallarins við fyrirtæki sem rekur fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Hins vegar eru þeir samningar sem Keflavíkurflugvöllur gerir við rekstraraðila þess eðlis að þeir eru jafnan tengdir við veltu. Af því má ráða að Isavia fái meira upp úr krafsinu eftir því sem rekstraraðilar í flugstöðinni fá meira í kassann. Það tók níu mánuði að fá svör frá Isavia um samning vegna fjármálaþjónustu á flugvellinum, sem var á þá leið að ekki væri unnt að veita umbeðnar upplýsingar.
Í maí í fyrra vakti frétt sem birtist á Vísi nokkra athygli þar sem sagt var frá íslenskum manni sem tapaði hátt í fimmtán þúsund krónum við það eitt að skipta erlendum gjaldeyri í Leifsstöð. Sá hafði selt Bandaríkjadollara á frekar óhagstæðu gengi en svo keypt evrur í staðinn sem kostuðu umtalsvert meira en ef hann hefði skipt peningunum í almennu bankaútibúi. Til viðbótar við gengistapið var tekið hátt í 11% gjald fyrir þjónustuna. Þá leiddi athugun fréttastofu í ljós að það geti kostað ríflega 20 prósentum meira að skipta gjaldeyri hjá fyrirtækinu í Leifsstöð en það myndi kosta að skipta sama gjaldeyri í útibúi íslenskra banka. Í framhaldinu sendi fréttastofa fyrirspurn á Isavia þar sem óskað var eftir upplýsingum um þau skilyrði sem liggja fyrir í samningi Isavia við fyrirtækið Prosegur Change, áður ChangeGroup, um fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Í fyrirspurninni var meðal annars spurt hvort einhverjar kröfur hafi verið gerðar af hálfu Isavia um hámark álags eða þóknunar sem fyrirtækinu væri heimilt að taka vegna gjaldeyrisviðskipta á flugvellinum samkvæmt samningi og hvort leigu- eða samningstekjur Isavia væru með einhverjum hætti tengdar við hagnað rekstraraðilans. Spurt var einnig hvenær samningurinn var gerður, hvað hann gildi lengi og við hvaða kröfur og forsendur hafi verið stuðst við síðasta útboð fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Þetta var í maí í fyrra en nú í þessari viku, rúmum níu mánuðum síðar, barst svar frá Isavia eftir að fyrirspurnin var ítrekuð í annað sinn. „Trúnaður gildir um innihald þeirra samninga sem Keflavíkurflugvöllur gerir við rekstraraðila enda um viðskiptahagsmuni þriðja aðila að ræða. Samningur Keflavíkurflugvallar við Prosegur um fjármálaþjónustu er til fimm ára og gildir til 2029. Samningar Keflavíkurflugvallar við rekstraraðila eru þess eðlis að þar er jafnan um veltutengingu að ræða en sem fyrr gildir trúnaður um hlutföll,” segir í svari Isavia. Þjónustan dregist saman í millitíðinni Þá er bent á í svarinu að síðan hafi þjónustan tekið breytingum, en fram kom í tilkynningu á heimasíðu Keflavíkurflugvallar í nóvember síðastliðnum að útibúi Prosegur Change á verslunar- og veitingasvæði flugvallarins, handan öryggisleitar, hafi verið lokað. Áfram sé hægt að taka út gjaldeyri í hraðbönkum beggja vegna við öryggisleit auk þess sem hægt sé að skipta seðlum í útibúi Prosegur Change í komusal flugstöðvarinnar. „Þjónustan hefur dregist saman enda breytingar orðið á eftirspurn eftir þjónustu af þessu tagi hér á landi sem og á flugvöllum út um allan heim,“ segir um þetta í svarinu frá Isavia til Vísis. Samkeppniseftirlitið áður gert athugasemdir Í áliti Samkeppniseftirlitsins frá árinu 2022 er fjallað um ábendingu frá Landsbankanum sem hafði gert athugasemdir við verðlagningu Arion banka hf. sem þá rak fjármálaþjónustu á flugvellinum. Tildrög málsins voru þau að sumarið 2015 hafi Isavia ráðist í forval á leigu og rekstri fyrir fjármálaþjónustu í flugstöðinni til næstu fjögurra ára, þar sem meðal annars var gert ráð fyrir að leigugreiðslur yrðu hlutfall af tekjum rekstraraðilans. Þá hafi verið gerð sú krafa að hvorki mætti selja né kaupa erlent reiðufé með meiri gengismun en 4% frá viðmiðunargengi og að þjónustugjöld skyldu vera í samræmi við þjónustugjöld í miðbæ Reykjavíkur. Sveinbjörn Indriðason er forstjóri Isavia.Vísir/Vilhelm Þessar forsendur, auk tímalengdar samnings við Isavia, hafi verið skilgreindar fyrir fram í útboðsgögnum. „Með nýjum samningi Arion banka og Isavia árið 2018 var gjaldeyrisálagið hins vegar hækkað umtalsvert sem þýðir að munur á kaup- og sölugengi gagnvart neytendum gat aukist verulega. Var því um grundvallarbreytingu á forsendum útboðsins að ræða þar sem skýrt hafði verið kveðið á um það í útboðsgögnunum að hámarkið væri 4% og að samningur myndi gilda til fjögurra ára. Að mati Samkeppniseftirlitsins hafa hvorki Arion banki og Isavia fært málefnaleg rök fyrir þörf á umræddri hækkun, t.d. að hún ætti sér stoð í breyttum kostnaðarforsendum,“ segir meðal annars í álitinu. Var það mat Samkeppniseftirlitsins að forvalið hafi tryggt einkarétt til að sinna fjármálaþjónustu í takmörkuðu rými flugstöðvarinnar sem geti haft áhrif á hagsmuni neytenda. „Hins vegar er hætt við að ávinningi samkeppninnar sem forvalið felur í sér sé eytt ef grundvallarforsendum útboða er breytt á miðju samningstímabili, til tjóns fyrir neytendur. Ef forsendur samninga af þessu tagi breytast á samningstímabilinu, væru eðlileg viðbrögð við því að segja samningnum upp og efna til nýs forvals eða samkeppni,“ sagði ennfremur í áliti Samkeppniseftirlitsins. Guðjón Helgason er upplýsingafulltrúi Isavia.Vísir/Arnar Líkt og áður segir reyndi Vísir að óska eftir upplýsingum um það hvort og hversu miklar skorður væru því settar hve mikið gengisálag eða þjónustugjald fjármálafyrirtæki megi taka fyrir þjónustu sína á Keflavíkurflugvelli samkvæmt samningi við Isavia. Þær upplýsingar kvaðst Isavia ekki geta veitt á grundvelli trúnaðar um innihald samninga. Því var ekki heldur svarað hvort kveðið hafi verið á um slíkar kvaðir við síðasta útboð.
Keflavíkurflugvöllur Isavia Fjármálafyrirtæki Neytendur Mest lesið Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent