Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 4. febrúar 2026 22:29 Páll Edwald ætlar að bjóða fram sína krafta. Páll Edwald hefur ákveðið að gefa kost á sér á lista Miðflokksins í Reykjavík í vor. Hann er lögfræðingur og athafnamaður og líkt og nafnið gefur til kynna sonur Ara Edwald fyrrverandi forstjóra Mjólkursamsölunnar.
Páll starfar sem yfirlögfræðingur hjá byggingarfélaginu Reir Verk og hefur reynslu í veitingabransanum, við lögmannsstofur og víðar. Hann greinir frá ákvörðun sinni í tilkynningu en þar segist hann hafa séð af eigin raun hvernig sífellt stærri gjá hefur myndast milli skipulags borgarinnar og raunverulegra þarfa borgarbúa. „Verktakar eru neyddir til þess að haga stærðum íbúða innan þröngs ramma sem borgin setur, án tillits til raunverulegrar eftirspurnar neytenda. Jafnframt hefur borgin beitt sér gegn byggingu bílakjallara í nýbyggingum, sem þó hafa engin áhrif á ásýnd eða umhverfi borgarinnar. Og virðist sú þvermóðska einungis vera til að tryggja að íbúar hafi ekki aðgang að bílastæðum við heimili sín,“ segir Páll. Pólitíska hugmyndafræði segir hann látna ráða för í stað vilja borgarbúa. Íþyngjandi reglugerð í húsnæðismálum og ósparnýtni borgarstjórnar eru meðal hugðarefna sem hann kemur inn á í tilkynningu sinni. Hann kveðst vilja leggja áherslu á kaupleiguúrræði og aðrar leiðir sem hann telur að raunhæft hjálpi fólki að eignast íbúðir sínar. „Reykjavíkurborg ber auðvitað ábyrgð á mun fleiri málum en húsnæðismálum einum, þótt ég sé aðallega að taka þau fyrir hér, þar sem þau brenna svo mjög á minni kynslóð. Borgin á að sinna grunnstoðum sínum af festu og fagmennsku, halda aga í rekstri, forgangsraða verkefnum skynsamlega og sýna virðingu fyrir almannafé. Hvort sem um ræðir skólamál, velferðarþjónustu, innviði eða skipulagsmál, eiga ákvarðanir að byggja á raunverulegum þörfum borgarbúa. Það á ekki að vera flókið að halda götum borgarinnar hreinum í stað þess að tilkynna bara um svifryksmengun og gera ekkert í því. Þetta snýst einfaldlega um að láta grunnþjónustu virka en ekki um hugmyndafræði eða sýndarmennsku,“ segir hann. Greint var frá því fyrr í dag að fregna væri að vænta frá Miðflokknum í borginni eftir helgi. Enn á eftir að koma í ljós hver vermir efsta sæti lista Miðflokksins en það segir Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður formanns að veðrði tilkynnt að helginni lokinni. Hann hefur verið kjördæmafélagi flokksins í Reykjavík innan handar við val á lista og uppstillingu hans í Reykjavík.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Reykjavík Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira