Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Sindri Sverrisson skrifar 4. febrúar 2026 15:45 Það sást vel í sjónvarpi þegar Giannis Agravanis missti stjórn á sér og kýldi Craig Moller. Skjáskot/RÚV2 Gríski körfuboltamaðurinn Giannis Agravanis verður með Stjörnunni í úrslitaleik VÍS-bikarsins á laugardaginn, gegn KR, þrátt fyrir hnefahöggið sem hann veitti leikmanni Keflavíkur í undanúrslitunum í gærkvöld.
Agravanis var rekinn úr húsi eftir að hafa kýlt Craig Moller í kviðinn í framlengingu leiksins í Smáranum í gær, sem Stjarnan endaði á að vinna 110-107. Leikmaðurinn öflugi gæti því átt yfir höfði sér leikbann en það skýrist ekki fyrr en á næsta fundi aga- og úrskurðarnefndar. Sú nefnd fundar jafnan í miðri viku og tekur þar fyrir brot sem átt hafa sér stað fram til miðnættis mánudaginn á undan. Það verður því ekki fyrr en í næstu viku sem það skýrist hvort Agravanis fær bann. Þetta staðfesti Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, í samtali við Vísi. Bikarúrslitaleikurinn er hins vegar á laugardaginn, klukkan 15, og Agravanis því frjálst að spila þar. Hannes segir ljóst að breyta þurfi reglugerðinni vilji menn koma í veg fyrir að þetta geti gerst. Annað gildir í úrslitakeppninni Þegar komið er fram í úrslitakeppnina í Bónus-deildunum fundar aganefndin hins vegar oftar og getur úrskurðað menn í bönn á milli leikja. „Í úrslitakeppni skal nefndin kvödd saman um leið og atvikaskýrsla/kæra berst. Skal nefndin kveða upp úrskurð í málinu svo fljótt sem auðið er. Ef um er ræða síðasta leik í deildarkeppni skulu sömu reglur gilda,“ segir í reglugerð. Í reglugerð KKÍ um aga- og úrskurðarmál segir meðal annars, um uppkvaðningu úrskurða: Aga- og úrskurðarnefnd skal kveða upp úrskurði á miðvikudögum og skulu þeir birtir á heimasíðu KKÍ. Almennt skulu öll mál sem borist hafa til skrifstofu KKÍ með sannarlegum hætti fyrir klukkan 00:00 á mánudögum á undan tekin fyrir. Úrskurðir nefndarinnar varðandi agamál taka almennt gildi klukkan 12:00 á hádegi næsta fimmtudag frá birtingu þeirra. Óheimilt er að taka út viðurlög í agamálum áður en úrskurðir taka gildi. Í úrslitakeppni allra flokka taka úrskurðir í agamálum gildi um leið og þeir hafa verið birtir. Það sama gildir um atvik sem gerast í síðasta leik í deildarkeppni.
VÍS-bikarinn Stjarnan KR Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira