Hjartað og andinn muni skila sigri Valur Páll Eiríksson skrifar 1. febrúar 2026 13:08 Arnór Atlason ræddi leikinn við Króata. Hann segist búast við örlítið frábrugðnum leik frá því fyrr á mótinu. sýn skjáskot „Menn eru bara spenntir og vilja gera allt til að klára þennan mánuð okkar saman vel. Medalía yrði frábær endir á þessu móti,“ segir Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, sem mætir Króatíu í leik um bronsið á EM í Herning í dag.
Arnór segir hafa gengið vel að hrista af sér tapið gegn Dönum á föstudag. Það muni svíða eitthvað áfram en það sé lykilatriði að hafa medalíu til að keppa um. Klippa: Arnór ræðir bronsleikinn við Króata „Auðvitað var þetta sárt að tapa undanúrslitaleik, á að vera það og má vera það í einhvern tíma. En þegar gulrótin er bronsmedalía þá er auðveldara að rífa sig upp fyrir það. Það eru allir þar að vilja klára þetta almennilega og jafna okkar besta árangur á Evrópumóti,“ segir Arnór. Ísland er að spila sinn níunda leik á mótinu á skömmum tíma. Það tekur eðlilega á en allir í hópnum eru þó leikfærir. „Staðan er bara fín, þannig séð. Allir eru klárir í leik, stórleik. Auðvitað eru menn lemstraðir eftir svona rosalega marga leiki á stuttum tíma. En ekkert alvarlegt,“ segir Arnór. Sigvaldi Björn Guðjónsson var kallaður inn í EM-hópinn í dag eftir að hafa komið til móts við liðið á dögunum. Hann verður á skýrslu í dag og til taks fyrir Óðinn Þór Ríkharðsson sem hefur spilað nánast allar mínútur á mótinu í hægra horninu. „Sigvaldi verður allavega til taks og ef á þarf að halda þá spilar Sigvaldi.“ Srna farinn og meira 7 á 6 Ísland tapaði með eins marks mun fyrir Króatíu í fyrsta leik í milliriðli í Malmö fyrir viku síðan. Króatar hafa síðan misst út skyttuna Zvonimir Srna sem var bestur þeirra sóknarlega gegn Íslandi. En býst Arnór við frábrugðnum leik? „Ef við kíkjum á síðustu leiki þá eru þeir farnir að spila með sjö á móti sex en síðast. Það verður sennilega aðeins meira núna. Þeir hafa auðvitað misst Srna sem spilaði mjög mikið hjá þeim í síðasta leik. Það verður örlítið öðruvísi sóknarleikur en varnarleikur þeirra 5-1 og 6-0 erum við undirbúnir fyrir. Ég er ekki viss um að taktíkin verði allsráðandi. Að það verði lykilatriðið. Það er hjartað og andinn í þessu og þeir sem eiga meira eftir á tanknum,“ segir Arnór. Engin hefnd per se Króatar hentu Íslandi úr keppni á HM fyrir ári síðan og unnu strákana okkar aftur á dögunum. Er ekki kominn tími á að fagna sigri gegn Króötum og taka brons í leiðinni? „Aðalmálið fyrir okkur er að við viljum ná bronsinu og klára þetta þriðja sæti. Króatar standa í veginum, en það er enginn hefndarhugur þannig séð. Við viljum gera eins vel og við getum. Ef við spilum okkar varnarleik og okkar sóknarleik erum við mjög góðir. Við viljum ná þangað og teljum að það muni gera það að verkum að við náum að vinna leikinn,“ segir Arnór. Viðtalið má sjá í spilaranum.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Körfubolti Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Fótbolti Fleiri fréttir „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Sjá meira