Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Árni Sæberg skrifar 26. janúar 2026 11:35 Eyjagöng vinna að því að undirbúa gerð jarðgangna til Vestmannaeyja. Vísir/Vilhelm Félagið Eyjagöng ehf., sem undirbýr gerð jarðganga á milli lands og Eyja, hefur tryggt sér stóran hluta af 200 milljóna króna fjármögnunarmarkmiði sínu. Meðal þeirra sem þegar hafa greitt fyrir hlutafé eru Íslandsbanki, Ísfélagið og Vinnslustöðin.
Í fréttatilkynningu frá Eyjagöngum segir að ólíkt mörgum öðrum þróunarverkefnum, sé ekki einungis um loforð að ræða, af því að lykilfjárfestar hafi þegar gengið frá greiðslu á hlutafé sínu. Félagið hafi verið stofnað fyrir tveimur mánuðum og muni hefja framkvæmdir í mars. Í hópi þeirra sem þegar hafi gerst hluthafar sé Íslandsbanki, en aðkoma bankans sé talin mikilvægur gæðastimpill á verkefnið. Þá hafi burðarásar í atvinnulífi Vestmannaeyja, Ísfélagið og Vinnslustöðin, þegar greitt fyrir sína hlutdeild, ásamt Vestmannaeyjabæ og Rangárþingi eystra. Aðaleigendur og stofnendur Laxeyjar í gegnum Sion ehf. og DVG Fasteignafélag séu einnig komnir í hluthafahópinn. „Það sendir sterkt merki inn í viðskiptalífið að þessir öflugu aðilar séu ekki bara að styðja okkur í orði, heldur séu þeir þegar búnir að leggja fram fjármagnið. Með Íslandsbanka og helstu atvinnufyrirtæki svæðisins í hluthafahópnum er ljóst að trúin á verkefnið er mikil. Við erum nú að klára viðræður við væntanlega fjárfesta í þessari lotu,“ er haft eftir Árna Sigfússyni, formanni Eyjaganga ehf. Loks segir að stefnt sé að því að ljúka hlutafjáraukningunni á næstu vikum.
Íslandsbanki Ísfélagið Vestmannaeyjar Jarðgöng á Íslandi Mest lesið Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Sjá meira