Opna World Class í sömu götu og Reebok Fitness Haraldur Guðmundsson skrifar 22. febrúar 2017 09:00 Laugar fengu lóð við Tjarnarvelli en Reebok rekur líkamsræktarstöð í götunni og aðra í innan við hundrað metra fjarlægð. Vísir/Stefán
Laugar ehf. hefur fengið úthlutað lóð undir nýja líkamsræktarstöð World Class við Tjarnarvelli í Hafnarfirði. Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class, segir stefnt að opnun haustið 2018 og að hann óttist ekki samkeppni við Reebok Fitness sem rekur tvær líkamsræktarstöðvar í innan við 100 metra fjarlægð. Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class.Vísir/GVA„Það verður samkeppni þarna á svæðinu en ég hef ekki áhyggjur af því. Ég keyri einfaldlega mína gæðastefnu og þá kemur fólkið,“ segir Björn í samtali við Markaðinn. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti lóðarumsókn Lauga um Tjarnarvelli 7 síðasta miðvikudag. Bæjaryfirvöld höfnuðu aftur á móti í maí í fyrra umsókn félagsins um lóð við Suðurbæjarlaug. Þar vildi Björn byggja 2.000 fermetra líkamsræktarstöð í suðurenda sundlaugargarðsins. „Ég reyndi við Suðurbæjarlaug og fékk ekki og hef alltaf haft áhuga á að koma upp alvöru stöð í Hafnarfirði með leikfimisölum og slíku. Húsið sem ég þarf að byggja er 4.200 fermetrar en stöðin sem slík verður um 2.500 fermetrar. Þetta er í stærri kantinum miðað við aðrar stöðvar hjá okkur,“ segir Björn. Reebok Fitness opnaði við Tjarnarvelli 3 í ágúst 2015. Byggingin hafði þá staðið tóm frá árinu 2008. Í júlí síðastliðnum sömdu Hafnarfjarðarbær og Reebok Fitness um opnun á nýrri líkamsræktarstöð í Ásvallalaug. Var þá skrifað undir fimm ára leigusamning en sundlaugin er staðsett rétt tæpum hundrað metrum frá lóð Lauga eða álíka langt frá og henni og hin stöð Reebok Fitness.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgirit Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira