Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2026 21:07 Andreas Wolff var stórkostlegur í marki þýska landsliðsins á EM í kvöld. Getty/Sina Schuldt Þjóðverjar unnu sinn þriðja leik í röð á EM í handbolta eftir stóru mistök íslenska þjálfarans Alfreðs Gíslasonar í riðlakeppninni. Þýska liðið vann tveggja marka sigur á Noregi í kvöld, 30-28.
Þýska liðið er því með fullt hús á toppi síns milliriðils (6 stig) eftir sigurleiki á móti Spánverjum, Portúgal og svo Norðmönnum í kvöld. Frakkland og Danmörk eru með fjögur stig. Þýska liðið er nú í draumastöðu en síðustu tveir leikirnir eru á móti fyrrnefndum gríðarlega sterkum liðum Frakka og Dana. Þýska liðið var tveimur mörkum undir í hálfleik en vann seinni hálfleikinn 15-11. Alfreð Gíslason getur þakkað markverði sínum Andreas Wolff fyrir að sigurinn kom í höfn því úlfurinn í þýska markinu varði alls 22 skot í leiknum og mörg þeirra úr frábærum færum. Marko Grgić var markahæstur í þýska liðinu með sjö mörk en þeir Johannes Golla og Lukas Zerbe skoruðu báðir fimm mörk. Sander Sagosen, August Pedersen og Kevin Gulliksen skoruðu allir fimm mörk fyrir Norðmenn. Norðmenn höfðu byrjað milliriðilinn á sigri á Spáni en eftir þetta tap verður mjög erfitt fyrir þá að komast í undanúrslitin. Norðmenn byrjuðu leikinn mjög vel og komust í 5-2 og 7-3 á upphafskafla leiksins. Frábær markvarsla Andreas Wolff kom þýska liðinu aftur inn í leikinn og Þjóðverjar voru búnir að jafna í 8-8. Þýska liðið var um tíma einu marki yfir í fyrri hálfleiknum en Norðmenn skoruðu þrjú af síðustu fjórum mörkum hálfleiksins og voru því tveimur mörkum yfir í hálfleik, 17-15. Andreas Wolff varði ellefu skot (39%) í fyrri hálfleiknum en samt var þýska liðið undir í hálfleik. Wolff hætti ekki að verja í seinni hálfleik og þá gekk mun betur hjá þýska liðinu hinum megin á vellinum. Þjóðverjar komust fyrst yfir í 20-19 og stuttu síðar var staðan orðin 26-21 fyrir þá. Norðmenn minnkuðu muninn aftur í tvö mörk og hættu aldrei en í lokin munaði tveimur mörkum á liðunum. Íslensku dómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn og gerðu það vel.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira