Handbolti

Líkur Ís­lands á verð­launum snar­aukist

Sindri Sverrisson og Aron Guðmundsson skrifa
Ísland mætir Króatíu í fyrsta leik sínum í milliriðlum EM í handbolta klukkan hálf þrjú í dag.
Ísland mætir Króatíu í fyrsta leik sínum í milliriðlum EM í handbolta klukkan hálf þrjú í dag. Vísir/EPA

Samkvæmt uppfærðu spálíkani eru nú tæplega 40% líkur taldar á því að Ísland komist í undanúrslit á EM karla í handbolta og spili þar með um verðlaun á mótinu. Áður voru líkurnar aðeins 20%.

Dr. Peter O‘Donoghue, prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, kynnti uppfært spálíkan sitt í dag í beinni útsendingu sem sjá mátti á Vísi. Upptöku má sjá neðst í greininni.

Úrslitin úr riðlakeppninni á EM, og úr fyrstu leikjum milliriðils I, hafa nú verið tekin inn í spálíkanið og eftir 100.000 keyrslur er niðurstaðan sú að Danmörk sé nú líklegast til þess að landa heimsmeistaratitlinum, með 22% sigurlíkur, þrátt fyrir tapið óvænta gegn Portúgal. Liðið er þó bara örlítið líklegra en Frakkland (21%).

Líkanið spáir því að lokastaðan á EM verði þessi:

  1. Danmörk
  2. Frakkland
  3. Svíþjóð
  4. Slóvenía
  5. Þýskaland
  6. Ísland
  7. Ungverjaland
  8. Portúgal

Það þykir því líklegast að Svíþjóð og Slóvenía verði þau tvö lið sem komast áfram upp úr milliriðli Íslands, en strákarnir okkar þykja ekki langt undan.

Áður var Íslandi raðað í 8. sæti og talið að Svíþjóð og Ungverjaland færu upp úr milliriðlinum í undanúrslit.

Ekki miklar líkur á titlinum

Taldar eru 3,3% líkur á að Ísland verði Evrópumeistari, 8% líkur á silfri og 28,3% líkur á að liðið komist í undanúrslit en tapi þar og spili um brons.

Þá eru taldar 24,3% líkur á að Ísland spili um 5. sæti en 20,1% líkur á að liðið endi í 7. eða 8. sæti og 12,8% líkur á 9. eða 10. sæti. Loks eru aðeins 3,3% líkur á að liðið endi í 11. eða 12. sæti og ljóst er að liðið getur ekki endað neðar.

Áður voru taldar 1,7% líkur á að Ísland ynni EM en 4% líkur á 2. sæti og 14,2% líkur á að liðið myndi spila um bronsverðlaunin.

Strákarnir okkar hafa unnið alla þrjá leiki sína á mótinu til þessa, tóku tvö stig með sér í milliriðil og spila nú þýðingarmikinn leik gegn Króötum Dags Sigurðssonar klukkan hálf þrjú í dag. 

Í HR-stofunni í dag, sem sjá má hér að neðan, ræddu Kristján Halldórsson, kennari við íþróttafræðideild HR, Patrekur Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, og Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, málin og fóru yfir spálíkanið.

Þá bættist í hópinn Chris (Christopher Ian Curtis) dósent við íþróttafræðideild sem hefur starfað bæði í fræðasamfélaginu í um áratug og innan íþróttaheimsins síðustu 15 ár og sérhæft sig þar í næringarfræði íþróttafólks. Hann fjallaði um mikilvægi næringar fyrir íþróttafólk þegar leikið er svona þétt.

Upptöku frá HR-stofunni má finna hér fyrir neðan: 


Tengdar fréttir

„Virkar eins og maður sé að væla“

Aukinn hvíldartími strákanna okkar í handboltalandsliðinu gæti skipt sköpum er þeir mæta Króötum síðdegis í dag, að sögn Dags Sigurðssonar, þjálfara króatíska liðsins.

Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur oft verið meira sannfærandi í sóknarleiknum en í sigrinum mikilvæga á móti Ungverjum í lokaleik riðilsins á EM í handbolta. Eftir leikinn velti Besta sætið því fyrir sér hvort við þurfum að hafa áhyggjur af sókninni í framhaldinu á mótinu.

Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum

Elvar Ásgeirsson var kallaður inn í íslenska landsliðið í gær. Landsliðsþjálfararnir ákvaðu að hóa í Mosfellinginn eftir að Elvar Örn Jónsson meiddist.

„Mig kitlar svakalega í puttana“

Þorsteinn Leó Gunnarsson var á meðal hressari manna í Malmö í dag eftir að hafa tekið fullan þátt í æfingu í fyrsta sinn í tíu vikur.

„Ísland í betra formi en við höfum sýnt“

Dagur Sigurðsson býst við strembnum leik er hans menn í króatíska landsliðinu mæta Íslandi í fyrsta leik í milliriðli á EM á morgun. Sterka menn vanti í bæði lið.

Óðinn á eitt flottasta mark EM

Handknattleikssamband Evrópu hefur nú valið fimm flottustu mörkin sem skoruð voru í riðlakeppni Evrópumótsins, í Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Eitt markanna er íslenskt.

„Ég er bara Króati á morgun“

Dagur Sigurðsson segir ávallt sérstakt að mæta Íslandi en hann mun stýra Króatíu gegn strákunum okkar á EM á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×