Danir svöruðu fyrir Portúgalstapið og unnu Evrópumeistarana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2026 21:17 Mathias Gidsel var frábær í seinni hálfleiknum í kvöld og átti mikinn þátt í sigrinum á Frökkum. EPA/Bo Amstrup Danir stimpluðu sig aftur inn í Evrópumótið í handbolta með þriggja marka sigri á Evrópumeisturum Frakka í kvöld, 32-29.
Það gekk mikið á í Herning í kvöld og liðin skiptust margoft á því að hafa forystuna. Leikurinn var frábær handboltaleikur og mögulega forsmekkur að úrslitaleiknum. Úrslitin þýða að Þjóðverjar eru einir á toppnum með fjögur stig en Danmörk, Frakkland, Portúgal og Noregur eru öll með tvö stig. Danir voru sterkari á lokakaflanum og tryggðu sér sigur með því að enda leikinn á 8-3 spretti. Miklu munaði um það að markvörðurinn Emil Nielsen og stórstjarnan Mathias Gidsel sýndu sínar bestu hliðar í seinni hálfleiknum. Gidsel endaði með níu mörk í leiknum, Simon Pytlick skoraði átta mörk og Emil Jakobsen var með sex mörk. Aymeric Minne skoraði sjö mörk fyrir Frakka. Frakkar skoruðu þrjú af fyrstu fjórum mörkum leiksins (3-1) en Danir komust yfir í bæði 5-4 og 6-5. Franska liðið tók þá aftur frumkvæðið, komst tveimur mörkum yfir, 10-8, 11-9 og 12-10 en leiddi síðan með einu marki í hálfleik, 12-11. Danir byrjuðu seinni hálfleikinn vel og þar munaði mikið um að Mathias Gidsel væri kominn í gang. Gidsel skoraði fjögur mörk á fyrstu ellefu mínútum hálfleiksins, Danir unnu þær 8-5 og voru komnir tveimur mörkum yfir. Frakkarnir náðu að jafna metin aftur og spennan var mikil þar til Danir brunuðu fram úr á lokamínútum leiksins.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Sjá meira