Kvenskælingar svekktir eftir að hafa lent í hakkavél MR tvisvar í röð Agnar Már Másson skrifar 22. janúar 2026 19:09 Frá úrslitakeppni Gettu betur í 2025. Skjáskot/Rúv Sú óvænta staða kom upp í undankeppni Gettu betur að lið Kvennaskólans og Menntaskólans í Reykjavík kepptu á móti hvort öðru tvisvar í röð. Kvenskælingar, sem töpuðu báðum umferðum, eru svekktir en gömul Gettu betur-kempa segir að óheppni og „feil í kerfinu“ hafi valdið þessum tvöfalda tjarnarslag.
Liðin tvö eru í hópi þeirra sigursælustu í spurningakeppni framhaldsskólanna en Menntaskólinn í Reykjavík (MR) hefur unnið 23 titla en Kvennaskólinn (Kvennó) þrjá, rétt eins og Menntaskólinn á Akureyri og Menntaksólinn í Hamrahlíð. Liðin voru fyrst dregin á móti hvort öðru í fyrstu umferð í síðustu og gamli skólinn hafði þar betur gegn nágrönnum sínum og sigraði með 29 stig gegn 26 stigum Kvennaskólans. Þar sem Kvennaskólinn var stigahæsta tapliðið úr fyrstu umferð hlaut liðið annan séns og var Kvenskælingum hleypt áfram í aðra umferð. En þá gerðist það aftur að Kvenskælingar voru dregnir á móti MR í annarri umferð og öttu skólarnir því aftur kappi í gær. Aftur vann MR tjarnarslaginn, þó naumlega, með 28 stig gegn 26 stigum Kvenskælinga. Kvennaskólinn er þá formlega úr leik. Kvenskælingar svekktir en óska MR góðs gengis „Þetta er náttúrulega svekkjandi. Okkur finnst auðvitað gaman að keppa á móti MR. Þau eru vinir okkar,“ segir Þórhildur Lilja Hafsteinsdóttir, forseti Keðjunnar, um ósigrana tvo. Hún kveðst aftur á móti skilja að fyrirkomulag keppninnar þurfi að vera sanngjarnt. Það þýði ekki taka til dæmis Kvennaskólann eða MR út fyrir sviga, þó að þeir hafi unnið keppnirnar oftast. „Það þarf náttúrulega að gefa öllum skólum jöfn tækifæri. Það gæti líka alveg verið að annar skóli sé með miklu betra lið og þá er gott að veita öllum sama tækifæri.“ Þórhildur Lilja Hafsteinsdóttir er forseti Keðjunnar, nemendafélags Kvennaskólans, skólaárið 2025-2026.Ljósmyndanefnd Kvennaskólans Aðspurð hvort hún telji að setja þurfi einhvers konar varnagla til að koma í veg fyrir dæmi sem þetta – þegar tvö sigursælustu lið keppninnar lenda á móti hvort öðru í bæði fyrstu og annarri umferð – segist Þórhildur ekki hafa neina sérstaka skoðun á því. „Það er enginn í Kvennó eitthvað reiður, við óskum vinum okkar í MR góðs gengis. Svona er þetta bara, en við höfum enn þá söngvakeppnina [Söngvakeppni Framhaldsskóla og MORFÍs, og við ætlum bara að reyna að brillera þar.“ „Ótrúleg óheppni raunar.“ Stefán Pálsson sagnfræðingur var dómari í Gettu betur árin 2004 og 2005 en hann stingur niður penna á Facebook og segir ósigur Kvenskælinga afleiðing ótrúlegrar óheppni. „Ein erfiðasta stundin á dómaraferli mínum í Gettu betur var þegar MR og Borgarholtsskóli drógust saman í 2. umferð og ljóst var að annað liðið kæmist ekki í sjónvarp. Í kvöld mættust MR og Kvennó við sömu aðstæður. Kvennaskólinn situr eftir þrátt fyrir að þrjú sjónvarpslið hafi lokið keppni með jafnmörg eða færri stig en Kvenskælingar fengu í hraðaspurningunum einum. Þetta er blóðugt,“ skrifar Stefán Stefán Pálsson, sagnfræðingur og Gettu betur-kempa.Vísir/Vilhelm Í ummælum undir færslu Stefáns velta sumir fyrir sér lausnum til að komast undan slíkri stöðu. Pétur Fannberg Víglundsson stingur þar upp á því að einhvers „wildcard“ kerfi verði komið á fót til að koma í veg fyrir svona. Stefán bætir við undir ummælum Péturs: „Þetta er afleiðing af ótrúlegri óheppni og smá feil í kerfinu.“ Hann segir að ef stigahæstu liðin hefðu verið sett í efri flokk hefði Kvennó endað þar. En í staðinn drógust sömu lið saman aftur. „Ótrúleg óheppni raunar.“
Gettu betur Framhaldsskólar Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira