Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Kristján Már Unnarsson skrifar 20. janúar 2026 21:56 Grænlenska skipið Polar Amaroq kom til Norðfjarðar í morgun með fyrsta loðnufarm vertíðarinnar. Andri Gunnar Axelsson/Síldarvinnslan Gleði ríkti á Norðfirði í dag þegar fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað hjá Síldarvinnslunni. Loðnunni er lýst sem stórri og fallegri og fer hún öll í heilfrystingu til manneldis.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá grænlenska skipið Polar Amaroq komið til Norðfjarðar í morgun með þennan fyrsta loðnufarm vertíðarinnar. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er haft eftir skipstjóranum Geir Zoёga að loðnan hafi veiðst um 50 til 60 mílur út af Norðfjarðarhorni. Sagði skipstjórinn það hafa komið þeim á óvart að rekast á loðnu þarna strax og þeir hafi í raun ekki þurft að leita neitt. Polar Amaroq við bryggju á Norðfirði í morgun. Andri Gunnar Axelsson/Síldarvinnslan Geir sagði skipverja vera káta og glaða og að loðnan virtist vera stór og falleg og úrvalshráefni. Farmurinn var alls 340 tonn og var loðnunni landað upp úr hádegi inn í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar. Rekstrarstjóri fiskiðjuversins, Geir S. Hlöðversson, sagði gleði ríkja á Norðfirði. Þar yrðu allir kátir þegar loðnan birtist. Hann sagði loðnuna virkilega fallega. Hún yrði öll heilfryst til manneldis og seld til Austur-Evrópu, mest til Úkraínu. Loðnan flæðir inn í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar.Geir S. Hlöðversson/Síldarvinnslan Þótt þessi fyrsta loðna sé núna komin á land er búist við að vertíðin fari rólega af stað. Menn spá því að fullur kraftur verði vart kominn í loðnuveiðarnar fyrr en í kringum 10. febrúar. Hér má sjá fyrstu loðnu vertíðarinnar:
Loðnuveiðar Sjávarútvegur Fjarðabyggð Síldarvinnslan Tengdar fréttir Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Loðnuvertíðin er hafin en fyrsta loðnan veiddist í dag út af Austfjörðum og er stefnt að því að henni verði landað á Norðfirði á morgun. Þá héldu fimm skip á miðin í dag til loðnumælinga á vegum Hafrannsóknastofnunar en niðurstöðurnar ráða miklu um það hversu stór loðnukvótinn verður. 19. janúar 2026 22:20 Kennsla í loðnuveiði: Dæla úr nót annarra „Það er bara fundin torfa og kastað,“ svarar skipstjórinn á Beiti NK, Sturla Þórðarson, þegar við biðjum hann um að útskýra fyrir áhorfendum hvernig loðnuveiðar fara fram. 5. apríl 2021 07:43 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira
Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Loðnuvertíðin er hafin en fyrsta loðnan veiddist í dag út af Austfjörðum og er stefnt að því að henni verði landað á Norðfirði á morgun. Þá héldu fimm skip á miðin í dag til loðnumælinga á vegum Hafrannsóknastofnunar en niðurstöðurnar ráða miklu um það hversu stór loðnukvótinn verður. 19. janúar 2026 22:20
Kennsla í loðnuveiði: Dæla úr nót annarra „Það er bara fundin torfa og kastað,“ svarar skipstjórinn á Beiti NK, Sturla Þórðarson, þegar við biðjum hann um að útskýra fyrir áhorfendum hvernig loðnuveiðar fara fram. 5. apríl 2021 07:43