Slógu met sem Ísland er fegið að eiga ekki lengur Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. janúar 2026 08:00 Lítil markvarsla og enn minni varnarleikur var í leik Slóveníu og Svartfjallalands í gærkvöldi. EPA/Cornelius Poppe NORWAY OU Varnarleikur Íslands gegn Hvíta-Rússlandi árið 2016 er ekki lengur versta varnarframmistaða í sögu Evrópumótsins í handbolta. Slóvenía og Svartfjallaland slógu markametið þegar þau skoruðu samtals 81 mark í gærkvöldi.
Slóvenar unnu Svartfellinga 41-40 eftir háspennuleik sem hefði getað farið á hvorn veginn sem er. Slóvenarnir eru að glíma við mikil meiðsli en reynsluboltarnir Blaz Janc og Domen Makuc stigu vel upp og skoruðu samanlagt 17 af 41 marki Slóveníu. Leikurinn var í raun lygilegur. Bæði lið söknuðu aðalmarkmanna sinna, sem að útskýrir kannski eitthvað, en varnirnar voru samt alveg arfaslakar. Svartfellingar létu vaða utan af velli og skoruðu að vild, fyrsta markvarslan kom ekki fyrr en eftir rúmar fimmtán mínútur í leiknum, og Slóveninn Blaz Janc klúðraði ekki færi í fyrri hálfleik. Svo einhver dæmi séu nefnd. NEW ALL-TIME RECORD!Most goals in a single game at a European Championship all-time:81: Slovenia 41-40 Montenegro🆕77: Belarus 39-38 Iceland (group, 2016)74: Austria 37-37 Iceland (group, 2010)74: Lithuania 38-36 (ET) (9th place, 1998)74: Portugal 40-34 Romania🆕…— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) January 16, 2026 Ljóst er að þessi slaki varnarleikur var enn verri en hjá Íslandi og Hvíta-Rússlandi á EM 2016. Samtals 77 mörk voru skoruð í þeim leik, sem lauk með 39-38 sigri Hvíta-Rússlands eftir hræðilegan seinni hálfleik hjá Íslandi. Strákarnir okkar náðu ekki löglegri stöðvun síðustu sextán mínútur leiksins og íslensku markmennirnir vörðu ekki skot síðustu fimmtán mínúturnar. Hvíta-Rússland nýtti tólf af fjórtán síðustu sóknum sínum í leiknum. Einu tvær sóknirnir sem fóru forgörðum voru þegar þeir töpuðu boltanum.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Fótbolti Sokkunum fórnað og mikil spenna fyrir EM í Finnlandi Sport Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira