Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Atli Ísleifsson skrifar 22. desember 2025 08:22 Höfuðstöðvar Alvotech í Vatnsmýrinni. Vísir/Vilhelm Alvotech hefur hafið markaðssetningu á Gobivaz, hliðstæðu Alvotech við Simponi (golimumab), í Evrópu en um er að ræða fyrstu hliðstæðu við Simponi sem komi á markað í heiminum. Advanz Pharma fer með einkarétt á sölu Gobivaz í Evrópu.
Frá þessu segir í tilkyningu Alvotech til Kauphallar. Þar segir að Heilbrigðisþjónusta Englands (National Health Service England) hafi samið um að kaupa hliðstæðuna í stað frumlyfsins, eftir opinbert útboð þar sem Advanz Pharma hafi átt besta tilboðið. Þessi ákvörðun er byggð á stefnu NHS um að auka aðgengi sjúklinga með langvinna bólgusjúkdóma að hágæða líftæknilyfjum. Markaðssetning á meginlandi Evrópu og skráning Gobivaz í verðskrár heilbrigðistrygginga á Evrópska efnhagssvæðinu er einnig hafin,“ segir í tilkynningu. Haft er eftir Róberti Wessman, stjórnarformanni og forstjóra Alvotech, að félagið fagni því að meðferð sjúklinga með Gobivaz sé hafin og að fyrsta hliðstæðan við Simponi sem hlotið hefur hafi markaðsleyfi sé komin á markað. „Þessi hliðstæða við Simponi er mikilvæg viðbót fyrir sjúklinga og meðferðaraðila. Niðurstaðan í útboði NHS England sýnir vel hversu mikilvægt er fyrir heilbrigðisstofnanir og greiðendur lyfja að auka framboð af hágæða líftæknilyfjum,“ segir Róbert. „Markaðsleyfi Gobivaz var byggt á alhliða gögnum úr forklínískum og klínískum rannsóknum, sem sýndu að lyfið væri hliðstæða við frumlyfið Simponi. Gobivaz er framleitt í lyfjaverksmiðju Alvotech í Reykjavík og er í boði í öllum sömu lyfjaformum og frumlyfið. Um Alvotech Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum,“ segir í tilkynningunni.
Alvotech Lyf Líftækni Kauphöllin Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira