Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2025 14:31 Guðbjörg Sverrisdóttir var heiðruð þegar hún sló leikjamet efstu deildar í gær. Hér er hún með Svala Björgvinssyni, formanni Körfuknattleiksdeildar Vals. Vísir/Anton Brink Guðbjörg Sverrisdóttir varð í gærkvöldi fyrsta konan til að spila fjögur hundruð deildarleiki í efstu deild. Hún setur leikjamet í hverjum leik.
Guðbjörg varð jafnframt aðeins sjöundi körfuboltaleikmaðurinn sem nær að spila fjögur hundruð deildarleiki í íslensku deildinni en hinir meðlimirnir í klúbbnum eru Hlynur Bæringsson, Marel Örn Guðlaugsson, Guðjón Skúlason, Páll Axel Vilbergsson, Teitur Örlygsson og Valur Ingimundarson. Guðbjörg lék þennan tímamótaleik með Val og á móti einu af sínum fyrri félögum. Valur vann þá 31 stigs sigur á Hamar/Þór á Hlíðarenda. Guðbjörg spilaði í tæpar tólf mínútur og var með þrjú stig og þrjú fráköst. Hún setti niður einn þrist úr þremur skotum. Guðbjörg sló leikjamet Sigrúnar Sjafnar Ámundadóttur á síðasta tímabili og er nú komin með átján leikja forskot á toppnum. Guðbjörg hefur leikið 325 af þessum 400 leikjum með Val en 37 lék hún með uppeldisfélagi sínu Haukum og 38 leiki lék hún með Hamri. Guðbjörg var aðeins fjórtán ára og fjögurra mánaða þegar hún lék sinn fyrsta leik með Haukum á móti ÍS 11. febrúar 2007. Ferill hennar í efstu deild spannar nú næstum því átján ár. Guðbjörg hefur verið í sigurliði í 255 af þessum 400 leikjum eða 64 prósent leikjanna. Hlynur Bæringsson á karlametið og flesta leiki í efstu deild á Íslandi hjá báðum kynjum. Guðbörgu vantar enn 23 leiki til að ná því meti og yrði þá að spila næsta tímabil líka til að ná í skottið á Hlyni.
Bónus-deild kvenna Valur Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira