Daníel lokaði markinu í Skógarseli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. nóvember 2025 20:50 Daníel Freyr Andrésson varði nær helming þeirra skota sem hann fékk á sig í viðureign ÍR og FH í kvöld. vísir/hulda margrét FH lyfti sér upp í 4. sæti Olís-deildar karla með öruggum sigri á ÍR á útivelli, 25-33, í kvöld. Daníel Freyr Andrésson átti stórleik í marki FH-inga.
Baldur Fritz Bjarnason, markakóngur Olís-deildarinnar á síðasta tímabili, skoraði tíu mörk fyrir ÍR sem hefur ekki enn unnið leik í vetur. Breiðhyltingar eru með þrjú stig á botni Olís-deildarinnar, fjórum stigum frá öruggu sæti. FH tók völdin strax í byrjun leiks, skoraði fyrstu fjögur mörkin en ÍR gaf sig ekki, minnkaði muninn nokkrum sinnum í eitt mark og jafnaði svo í 11-11. FH-ingar enduðu fyrri hálfleikinn hins vegar vel, skoruðu fimm af síðustu sex mörkum hans og fóru með fjögurra marka forskot til búningsherbergja, 12-16. Eftir hlé voru FH-ingar mun sterkari aðilinn og gengu frá leiknum með því að skora fimm mörk í röð snemma í seinni hálfleik. Mestur varð munurinn á liðunum níu mörk en FH vann á endanum átta marka sigur, 25-33. Daníel fór á kostum í marki gestanna og varði 22 skot, eða 47,7 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig. Hann skoraði einnig eitt mark. Símon Michael Guðjónsson og Garðar Ingi Sindrason skoruðu sex mörk hvor fyrir FH. Baldur Fritz var sem fyrr sagði markahæstur hjá ÍR með tíu mörk en Róbert Snær Örvarsson skoraði sex. Markverðir heimamanna, þeir Ólafur Rafn Gíslason og Alexander Ásgrímsson, vörðu samtals níu skot.
Olís-deild karla ÍR FH Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Körfubolti Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira