„Varnarsigur“ að fá inn texta um samráð um áhrif tollanna Kjartan Kjartansson og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 18. nóvember 2025 12:13 Álfheiður Ágústsdóttir er forstjóri Elkem á Íslandi. Elkem Forstjóri Elkem á Íslandi lýsir því sem varnarsigri að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætli að eiga í samráði við íslensk og norsk stjórnvöld um áhrif verndartolla á kísilmálm. Áhrif aðgerðanna á fyrirtækið ráðist af viðbrögðum markaða.
Aðildarríki Evrópusambandsins samþykktu tillögu framkvæmdastjórnar þess um tímabundnar verndaraðgerðir í þágu járnblendisframleiðslu í álfunni í dag. Hvorki Noregur né Ísland fengu undanþágu frá aðgerðunum þrátt fyrir að löndin tvö séu í evrópska efnahagsbandalaginu. Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem sem rekur kísilmálmver á Grundartanga, segir niðurstöðuna vonbrigði að Ísland sé skilið eftir yfir utan og teljist ekki hluti af innri markaði ESB. Íslensk og norsk stjórnvöld hafi engu að síður gert allt sem í þeirra valdi stóð til þess að verja iðnaðinn. Þá sagði í tilkynningunni að framkvæmdastjórnin ætlaði að eiga í samráði við Íslendinga og Norðmenn á þriggja mánaða fresti þar sem áhrif aðgerðanna yrðu metin. Álfheiður telur það vissan varnarsigur að hafa náð þessum texta inn í aðgerðirnar. „Að ná þessum texta inn og síðan þegar áhrifin fara að koma fram að möguleika að taka samtölin er mjög gott. Sannarlega betra en ef þessi texti hefði ekki bæst við,“ segir hún. Selja einnig til Ameríku og Asíu Þrátt fyrir að Ísland og Noregur séu ekki undanþegin aðgerðum sagði framkvæmdastjórnin í tilkynningu í dag að þær séu hannaðar þannig að þær hafi lítil áhrif á virðiskeðjur í Evrópu. Ísland og Noregur framleiða stóran hluta þess kísilmálms sem fluttur er til álfunnar. Álfheiður segir erfitt að segja til um áhrif aðgerðanna á Elkem á Íslandi til lengri tíma. Bæði sé hægt að teikna upp jákvæðar og neikvæðar sviðsmyndir. „Það verður allt svolítið að ráðast hvernig markaðirnir munu svara okkur,“ segir hún. Til skamms tíma selji fyrirtækið einnig inn á Ameríku- og Asíumarkað. „Við munum auðvitað reyna að raða púslunum okkar upp eftir því,“ segir forstjórinn..
Evrópusambandið Skattar, tollar og gjöld Stóriðja Verndarráðstafanir ESB vegna kísilmálms Hvalfjarðarsveit Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira