Eyjamaðurinn vann öflugan Framara í Svíþjóð Sindri Sverrisson skrifar 14. nóvember 2025 19:50 Arnór Viðarsson fagnaði sigri með Karlskrona í kvöld. Karlskrona Á meðan að ÍBV og Fram mættust í Olís-deildinni í Eyjum í kvöld áttust uppalinn Eyjamaður og uppalinn Framari við í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta. Þar hafði Eyjamaðurinn betur.
Um var að ræða leik Amo og Karlskrona í Svíþjóð þar sem gestirnir í Karlskrona fögnuðu öruggum sigri að lokum, 37-30. Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson skoraði fimm mörk úr tíu skotum fyrir Karlskrona og var á meðal markahæstu manna í liðinu. Framarinn Arnar Birkir Hálfdánsson var í algjöru lykilhlutverki hjá Amo og skoraði meðal annars í lok fyrri hálfleiks þegar hann kom liðinu yfir, 16-15. Arnar skoraði sex mörk úr átta skotum og átti fjórar stoðsendingar en náði þó ekki að koma í veg fyrir að Karlskrona næði fljótt góðu forskoti í seinni hálfleiknum. Ólafur Guðmundsson var ekki með Karlskrona í kvöld en hann glímir enn við meiðsli. Þetta var annar sigur Karlskrona í röð og er liðið í 5. sæti af 14 liðum með 12 stig eftir 10 leiki. Amo er í 10. sæti með 9 stig eftir 11 leiki. Blær kom að sjö mörkum í tapi Í Þýskalandi varð Blær Hinriksson að sætta sig við tap með Leipzig gegn Minden á útivelli, 32-26. Blær skoraði tvö mörk í leiknum en átti einnig fimm stoðsendingar eða flestar allra í liði Leipzig. Leipzig er því enn á botni efstu deildarinnar í Þýskalandi, án sigurs en með tvö stig. Minden er fjórum sætum ofar, í 14. sæti með sjö stig.
Þýski handboltinn Sænski handboltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira