KA-menn fögnuðu fjórða sigrinum í röð og nú á móti Val Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. október 2025 20:12 KA-menn hafa haft næga ástæðu til að fagna sigrum að undanförnu. @ka_handbolti_ KA-menn héldu sigurgöngu sinni áfram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld þegar þeir unnu Valsmenn í sjöundu umferðinni í kvöld.
KA vann fimm marka sigur á Val, 33-28, en þetta var fjórði deildarsigur KA-manna í röð. KA-menn unnu síðustu fjörutíu mínútur leiksins með átta mörkum, 24-16 og sýndu þá heldur betur styrk sinn. KA komst fyrir vikið upp í tíu stig og við hlið Aftureldingar og Hauka í efstu sætunum. Valsmenn töpuðu aftur á móti öðru sinni í síðustu þremur leikjum og misstu KA-menn upp fyrir sig í töflunni. Georgíumaðurinn Giorgi Dikhaminjia var frábær í liði KA en hann skoraði úr ellefu fyrstu skotunum sínum í leiknum og endaði með tólf mörk úr þrettán skotum. Bjarni Ófeigur Valdimarsson var einnig mjög öflugur með sjö mörk og sjö stoðsendingar. Logi Gautason skoraði fimm mörk. Hinn ungi Gunnar Róbertsson skoraði átta mörk en aðeins tvö þeirra í seinni hálfleiknum. Andri Finnsson var með fjögur mörk. Valsmenn komust í 3-1 og 6-4 í upphafi leiks og voru skrefinu á undan allan hálfleikinn. Mest náðu þeir þriggja marka forskoti, 12-9, þegar hálfleikurinn var rúmlega hálfnaður. Heimamenn í KA voru fljótir að jafna metin í 14-14 og staðan var 17-17 í hálfleik eftir að Valsmenn skoruðu síðasta mark hálfleiksins. Gunnar Róbertsson skoraði þá sitt sjötta mark í leiknum. KA-menn enduðu fyrri hálfleik vel og byrjuðu seinni hálfleikinn mjög vel. Þeir náðu þriggja marka forskoti, 23-20. Eftir það voru þeir komnir með tökin og sigldu sigrinum í höfn í seinni hálfleiknum.
Olís-deild karla KA Valur Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira