Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Árni Jóhannsson skrifar 8. ágúst 2025 19:30 Stelpurnar okkar gerðu vel gegn Austurríki í dag. @hsi_iceland Undir 17 ára landslið kvenna í handbolta lagði Austurríki með fjórum mörkum í dag 31-27. Leikið var á EM sem fram fer í Svartfjallalandi og tryggði sigurinn Stelpunum okkar leik um 17. sætið í mótinu.
Íslensku stelpurnar lentu undir í byrjun og voru fjórum mörkum undir þegar um fimm mínútur voru liðnar af leiknum. Þær bitu heldur betur í skjaldarrendurnar, nöguðu niður forskotið og komust yfir, 10-9, þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Þær juku við forskotið sitt og leiddu með þremur mörkum í hálfleik 17-14. Frábær byrjun í seinni hálfleik kom íslenska liðinu í sjö marka forystu og náðu þær austurrísku ekki að komast nálægt þeim íslensku. Munurinn var orðinn níu mörk um miðjan hálfleikinn og Ísland sýndi engin grið. Austurríki náði þó að klóra aðeins í bakkann og minnka muninn niður í fjögur mörk 31-27 og þar við sat. Markahæst var Ebba Guðríður Ægisdóttir, leikmaður Hauka, með níu mörk í tíu skotum. Danijela Sara Björnsdóttir varði síðan 16 skot og varði 40% skota sem komu á hana. Ísland mun því leika um 17. sætið í mótinu gegn Noregi. Leikurinn mun fara fram á sunnudaginn 10. ágúst nk. kl. 10 að íslenskum tíma. Úrslit og markaskorarar fengnir af Handbolti.is.
Landslið kvenna í handbolta Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Körfubolti Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Fleiri fréttir „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri Sjá meira