Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Siggeir Ævarsson skrifar 29. júní 2025 19:35 Julie Allemand gefur liðsfélögum sínum fimmur Vísir/FIBA Belgar eru Evrópumeistarar kvenna í körfubolta annað mótið í röð eftir frábæra endurkomu í 4. leikhluta gegn Spánverjum en lokatölur leiksins urðu 67-65 Belgíu í vil.
Úrslitaleikurinn í ár var endurtekning frá mótinu 2023 þar sem Belgía vann sex stiga sigur á Spáni 64-58. Spánverjar höfðu því harma að hefna í kvöld en Belgar freistuðu þess að vinna mótið í annað sinn og sömuleiðis í annað skiptið í röð. Það leit allt út fyrir að Spánverjar næðu að koma fram hefndum í ár en þegar rúmar fjórar mínútur voru til leiksloka var staðan 51-63 Spánverjum í vil. Talnaglöggir sjá í hendi sér að Belgar unnu síðustu fjórar mínúturnar 16-2 en þær komust þó ekki yfir fyrr en 18 sekúndur voru eftir með körfu frá WNBA leikmanninum Julie Allemand, sem var stigahæst Belga með 19 stig. Emma Meesseman, sem leikur fyrir Fenerbahce í Tyrklandi, átti einnig stórleik með 16 stig, ellefu fráköst og sjö stoðsendingar. Eins og áður sagði var þetta annar Evrópumeistaratitill Belga. Spánverjar hafa unnið Evrópumeistaramótið fjórum sinnum en Sovétríkin höfðu á sínum tíma algjöra yfirburði og unnu mótið 21 sinnum í 22 tilraunum í röð og á árunum 1960-1991 einokuðu þau titilinn.
Körfubolti Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Fleiri fréttir Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Sjá meira