„Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Jón Ísak Ragnarsson skrifar 15. maí 2025 23:00 Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka segir að eftirspurn almennings í nýafstöðnu útboði á eftirstandandi hlutum ríkisins í bankanum hafi verið fram úr þeirra björtustu vonum. Tilkynnt verður um það í fyrramálið hverjir fá hvaða hlut, en hann telur ólíklegt að fagfjárfestar fái úthlutun vegna gífurlegrar eftirspurnar almennings, sem eru í forgangi.
Tilkynnt var um það í dag að allur eignarhluti ríkisins yrði seldur í yfirstandandi útboði í ljósi fordæmalausrar eftirspurnar innanlands. Útboðshlutirnir með magnaukningunni voru samtals 850.000.007 almennir hlutir, eða 45,2 prósent af útgefnu og útistandandi hlutafé í Íslandsbanka hf. Flestir geti búist við að fá sinn hlut Jón segir að almenningur hafi getað keypt hlut fyrir allt að 20 milljónir króna. Það komi svo í ljós hvort fólk fái úthlutað alla upphæðina sem þau vildu fá eða hvort eftirspurnin hafi verið ennþá meiri þannig það komi einhver skerðing. „En ég held að flestir geti búist við að fá stærstan hluta af því sem þeir óskuðu eftir,“ sagði Jón en hann var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Viðtalið var tekið áður en helstu niðurstöður útboðsins voru birtar í kvöld. Seinna í kvöld kom svo tilkynning frá fjármálaráðuneytinu þar sem fram kom að heildarvirði útboðsins á útboðsgenginu hafi numið rúmlega 90.576.000.746 krónum. Heildareftirspurnin hafi numið alls um 190 milljörðum króna. Umfameftirspurnin hafi þannig numið 100 milljörðum króna. Jón segir að tilkynnt verði um úthlutunina í fyrramálið og gengið verði frá viðskiptunum á þriðjudaginn næstkomandi. Hann veit ekki hvort margir hafi keypt fyrir 20 milljónir. „Nei ég nefnilega veit það ekki. Við vorum ekki söluaðili í útboðinu þannig ég sé ekki útboðsbókina. Þannig að það verður bara mjög fróðlegt að heyra hversu margir hafa tekið þátt.“ Höfðu eytt miklum tíma í að kynna bankann fyrir erlendum fjárfestum Jón segir að miðað við tilkynninguna virðist vera að eftirspurnin frá almenningi hafi verið umfram það magn sem ríkið hafði til sölu. Það þýði að það sé ólíklegt að fagfjárfestar, innlendir og erlendir, fái úthlutun. „Það má segja að það sé að einhverju leyti smá vonbrigði í því að hafa ekki fengið neitt, af því við höfum eytt miklum tíma undanfarið að kynna bankann fyrir fjárfestum og margir þar sem höfðu verið spenntir og voru að bíða eftir þessu,“ segir hann. Erlendir fjárfestar sem bankinn hafi rætt við væru margir og ólíkir. „Við vorum búin að fara til Norðurlandanna, London og til Bandaríkjanna að hitta allan skalann. Hitta litla fjárfesta sem eru svona mögulega að fjárfesta fyrir einstaka fjölskyldur. Svo eru það vogunarsjóðir og upp í allra stærstu fjárfesta í heimi sem eru að stýra trilljónum dollara. Við fundum áhuga hjá langflestum sem við hittum,“ segir hann. Fólk horfi á þetta sem langtímafjárfestingu Jón segir erfitt að segja til um það hvort gengið hafi verið of lágt. „Nei það er nefnilega erfitt að segja, ég hef nú verið í þessu ansi lengi. Maður sér nú ýmir útboð og stundum ganga þau vel og stundum illa, oft munar ansi litlu.“ „Það byggir svolítið á því að það myndast svona stemning. Hérna einhvern veginn myndaðist stemning, gott veður í vikunni og létt yfir fólki. Fólk svona byrjaði að tala sín á milli og margir að spá og spekúlera og einhvern veginn myndast þessi alda sem vindur upp á sig og þannig verður þessi mikli áhugi,“ segir Jón. Jón myndi sjálfur horfa á þessa fjárfestingu sem langtímafjárfestingu, en fólk verði að meta það fyrir sig og sumir séu að fara inn til skemmri tíma. „Þetta er varfærinn banki með stöðugan rekstur, við horfum til lengri tíma og við horfum til lengri tíma og vonum að hluthafarnir geri það líka.“
Salan á Íslandsbanka Íslandsbanki Reykjavík síðdegis Bylgjan Fjármálafyrirtæki Tengdar fréttir Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi Ritstjóri Innherja telur líklegt að hátt í hundrað milljarðar króna fáist fyrir hlut ríkisins í Íslandsbanka í yfirstandandi söluferli. Líklega sé um að ræða stærstu eignasölu ríkissjóðs frá upphafi. 15. maí 2025 19:20 Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Bankastjóri Íslandsbanka segir jákvætt að almenningur njóti forgangs við sölu á hluti ríkisins í Íslandsbanka, um sé að ræða góða fjárfestingu. Útboð vegna sölunnar hófst í dag en fjármálaráðherra segir núverandi aðstæður á mörkuðum góðar fyrir sölu. 13. maí 2025 19:03 Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ekki tekið ákvörðun um að stækka útboðið í Íslandsbanka. Áskriftir bárust samdægurs í tuttugu prósenta hlut sem boðinn var út í fyrradag og í heild hefur margföld umframáskrift borist í hlutinn. Heimild til að stækka útboðið kann að verða nýtt í ljósi þessa. 15. maí 2025 09:28 Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Sjá meira
Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi Ritstjóri Innherja telur líklegt að hátt í hundrað milljarðar króna fáist fyrir hlut ríkisins í Íslandsbanka í yfirstandandi söluferli. Líklega sé um að ræða stærstu eignasölu ríkissjóðs frá upphafi. 15. maí 2025 19:20
Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Bankastjóri Íslandsbanka segir jákvætt að almenningur njóti forgangs við sölu á hluti ríkisins í Íslandsbanka, um sé að ræða góða fjárfestingu. Útboð vegna sölunnar hófst í dag en fjármálaráðherra segir núverandi aðstæður á mörkuðum góðar fyrir sölu. 13. maí 2025 19:03
Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ekki tekið ákvörðun um að stækka útboðið í Íslandsbanka. Áskriftir bárust samdægurs í tuttugu prósenta hlut sem boðinn var út í fyrradag og í heild hefur margföld umframáskrift borist í hlutinn. Heimild til að stækka útboðið kann að verða nýtt í ljósi þessa. 15. maí 2025 09:28