Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll Þórður Snær Júlíusson skrifar 15. maí 2025 14:02 Árið 2000 kom út viðtalsbók sem hét „Í hlutverki leiðtogans“. Á meðal þeirra sem voru þar til viðtals var Davíð Oddsson, sem nú hefur verið ritstjóri Morgunblaðsins í næstum 16 ár en var um tíma formaður Sjálfstæðisflokks og forsætisráðherra. Í viðtalinu lagði Davíð fram leikjafræði sem hann hafði þróað snemma á níunda áratug síðustu aldar þegar hann sat í skamman tíma sem oddviti í minnihluta í borgarstjórn. Hún var eftirfarandi: „Ég gerði öll mál tortryggileg og fylgdi þeirri reglu veiðimannsins að maður má ekki einungis kasta flugu sem manni finnst falleg því að maður veit aldrei hvaða flugu laxinn tekur. Ég tók því upp öll mál, jafnvel þó að ég væri í hjarta mínu samþykkur þeim, og hjólaði í þau því að ég leit á stjórnarandstöðu sem stjórnarandstöðu.“ Gervigreind án rökhugsunar Í gær eyddi stjórnarandstaðan fjórum klukkustundum og níu mínútum í að tala um fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna við Taíland. Samning sem liðkar fyrir vöru- og þjónustukaupum milli samningsaðila. Samning sem enginn á Alþingi er á móti. Samning sem fulltrúar allra flokka í utanríkismálanefnd skrifuðu saman undir nefndarálit vegna. Í því áliti sagði: „Nefndin tekur undir það mat að með samningnum sé lagður grunnur að bættri samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja, fjárfesta og einstaklinga í Taílandi. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.“ Þegar málið kom til atkvæðagreiðslu í dag var það samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, þingmanna úr öllum flokkum. Þrátt fyrir fullkomna þverpólitíska sátt um framgang málsins talaði stjórnarandstaðan í rúmlega fjórar klukkustundir um málið, sem er það langmesta sem nokkru sinni hefur verið rætt um fríverslunarsamning í sölum Alþingis. Ræður þingmanna andstöðunnar snerust um að þeir styddu frumvarp ríkisstjórnarinnar, en spurðu svo hvort annað hvort það væri ekki örugglega rétt skilið að þau styddu frumvarpið. Þær báru margar þess merki að þingmenn hefðu notið aðstoðar gervigreindar við samningu þeirra og sönnuðu um leið að hún hefur, að minnsta kosti ekki enn, þróað með sér rökhugsun. Stoppa það sem allir eru sammála um Vegna þessa tókst ekki að klára umræður um mál sem voru á dagskrá eins og aðgerðaráætlun í krabbameinsmálum 2025-2029, frumvarp um sorgarleyfi sem tryggir aukin réttindi foreldra þegar þeir missa börn, frumvarp um einföldun málsmeðferðar vegna framsals sakamanna og frumvarp um að auka heimildir lögreglu til að fá farþegaupplýsingar til að hjálpa henni í baráttunni við skipulagða brotastarfsemi eins og mansal og fíkniefnaviðskipti. Mál sem þverpólitísk sátt er um og skipta samfélaginu miklu að komist til framkvæmda. Útgáfur af þessum stjórnmálum sjást í þingsal Alþingis nánast daglega, þar sem tilgangurinn er bara að skemma fyrir framförum, vegna þess að það eru aðrir flokkar en þeir sem nú sitja í stjórnarandstöðu standa fyrir þeim. Sá leikþáttur sem flestir muna best eftir á þessu þingi snerist um áfasta plasttappa í febrúar og stóð í fjóra klukkutíma og 36 mínútur. Pólitísku pabbavandamálin Þessi pólitík kemur auðvitað ekki á óvart enda öll stjórnarandstaðan að einhverju leyti afsprengi stjórnmála Davíðs-tímans. Stjórnmála sem biðu skipbrot með bankahruni og efnahagslegum glundroða fyrir næstum 17 árum síðan. Það var viðbúið að þessi þrotaða leikjafræði yrði ofan á þegar helmingaskiptaflokkarnir, og skilnaðarbarnið þeirra, myndu lenda saman í ríflegum minnihluta eftir að hafa verið hafnað með afgerandi hætti í kosningum. Svona höguðu þeir sér kjörtímabilið 2009 til 2013, þegar alls kyns met í innihaldslausum tafarleikjum voru sett. Svona hefur Sjálfstæðisflokkurinn hagað sér í minnihluta í borgarstjórn Reykjavíkur meira og minna frá árinu 1994 með þeim afleiðingum að hann hefur vart komist að í stjórn höfuðborgarinnar og þótt með öllu óstjórntækur. Undirliggjandi er, nú sem fyrr, að þessi hópur hagar sér eins og börn með hegðunarvanda. Þau halda sig vera með einkaleyfi á því að stjórna og þegar þau gera það ekki þá liggja þau öskrandi í forinni í frekjukasti illa þjökuð af pólitískum pabbavandamálum. Þeim er auðvitað vorkunn, þau kunna ekkert annað. Opinberun á erindisleysi Það má auðvitað alveg segja það upphátt að helsta ástæða tafarleikjanna er sú að stjórnarandstaðan vill koma í veg fyrir framfarir. Henni svíður að komin sé til valda verkstjórn sem ætlar sér að taka á vandamálunum sem síðasta verklausa stjórn skildi eftir sig og koma á réttlátara samfélagi. Það er vor í Íslandssögunni eftir allt of langt slyddutímabil. Ég hef sagt það áður, og segi það aftur, verði þeim að því. Það eina sem þessir leikir opinbera er erindisleysi flokkanna sem nú mynda stjórnarandstöðu. Og það má hafa gaman af tilgerðarlegu móðgunargirninni þegar þau eru ítrekað opinberuð fyrir það sem þau eru. Ríkisstjórnarflokkarnir eru rólegir yfir þessum fyrirsjáanlega barnaskap. Þeir reiknuðu með honum, þótt það megi auðvitað alltaf vona að fólki batni. Þeirra markmið er áfram sem áður skýrt, að vinna af yfirvegun, skynsemi og duglegheitum Íslandi gagn. Höfundur er framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórður Snær Júlíusson Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar