Gætið ykkar: Maðurinn sem vildi stýra Íslandi með Snorra Sindri Sverrisson skrifar 24. janúar 2025 12:02 Dagur Sigurðsson er undir mikilli pressu sem landsliðsþjálfari Króata á heimavelli í Zagreb. Getty/Luka Stanzl Íslenska karlalandsliðið í handbolta þarf á öllum sínum kröftum að halda í kvöld til að vinna Króata á heimavelli þeirra í Zagreb, í afar mikilvægum leik á HM. Í liði Króata má finna frábæra leikmenn og þjálfarinn Dagur Sigurðsson veit sjálfsagt allt sem hægt er að vita um íslenska liðið.
Dagur tók við Króatíu fyrir tæpu ári síðan og kom liðinu á Ólympíuleikana í París í fyrra. Nú er gríðarleg pressa á honum að skila Króötum árangri á heimavelli á HM. Staðan gæti verið allt önnur því þegar HSÍ var í þjálfaraleit, fyrstu mánuði ársins 2023, eftir brotthvarf Guðmundar Guðmundssonar þá ræddu forkólfar sambandsins við Dag varðandi möguleikann á að taka við landsliðinu. Eins og frægt varð þá lýsti Dagur þeim fundi sem hreinasta leikþætti. Eins og Vísir greindi frá á sínum tíma þá voru Dagur og Snorri opnir fyrir því að taka við landsliðinu saman. Sá möguleiki virðist þó aldrei hafa verið ræddur af alvöru á þeim langa tíma sem að forráðamenn HSÍ unnu að ráðningu nýs þjálfara áður en Snorri var ráðinn 1. júní 2023. Núna mætast þeir Dagur og Snorri hins vegar á handboltavellinum í afar fróðlegri rimmu sem ræður miklu um framhaldið hjá báðum þjóðum á mótinu. Króatar töpuðu eina leiknum þar sem reynt hefur á þá til þessa á HM, 28-24 gegn Egyptum, og þurfa nauðsynlega á sigri að halda gegn Íslandi í kvöld. Þó að Ísland hafi unnið flottan 35-30 sigur gegn Króötum á EM fyrir ári síðan, og þó að stærstu stjörnur Króata hafi helst úr lestinni, þá velkist enginn í vafa um hve þungt próf liggur fyrir strákunum okkar í Zagreb. Stærstu stjörnurnar meiddust Miðjumennirnir Luka Cindric og Domagoj Duvnjak áttu að leiða Króata til verðlauna á mótinu en hafa báðir átt við meiðsli að stríða. Ekki virðist þó alveg útilokað að hið minnsta annar þeirra spili í kvöld. Einhver orðrómur var um rifrildi á milli Dags og Cindric en Dagur þvertók fyrir það í viðtali við Vísi. Ivan Martinovic er hættuleg, örvhent skytta úr Rhein-Neckar Löwen sem Íslendingar sluppu við að mæta á EM fyrir ári því hann hafði þá meiðst, og við hlið hans hafa hornamennirnir Filip Glavas og Mario Sostaric verið heitir. Þá hefur David Mandic, vinstri hornamaður toppliðs Melsungen í Þýskalandi, jafnað sig af meiðslum og ætti að styrkja króatíska liðið. Jafnoki Viktors Gísla? Sá sem ber þó kannski helst að vara við fyrir leikinn í kvöld er hinn 22 ára gamli markvörður Dominik Kuzmanovic. Þarna gæti mögulega verið kominn jafnoki Viktors Gísla Hallgrímssonar, í fyrsta sinn á mótinu, en þó ekki miðað við stórkostlega frammistöðu Viktors hingað til. „Dominik Kuzmanovic er einn mest spennandi og hæfileikaríkasti markvörðurinn í evrópskum handbolta,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson eftir að hafa tekið á móti Kuzmanovic hjá þýska félaginu Gummersbach síðasta sumar. Króatar þurfa enn frekar á Kuzmanovic að halda í ljósi þess að Matej Mandic getur ekki spilað, eftir árás liðsfélaga í félagsliði hans RK Zagreb. Kuzmanovic er í fjórða sæti yfir flestar markvörslur í þýsku deildinni í vetur og hann vakti gríðarlega athygli á EM í fyrra með stórbrotnum leik í 30-24 sigri á Þjóðverjunum hans Alfreðs Gíslasonar. Þar varði Kuzmanovic 22 skot og var maður leiksins. Hann var einnig með 42% markvörslu í leik við Frakka sem enduðu á að vinna mótið. Kuzmanovic endurtók svo leikinn gegn Þjóðverjum í Ólympíuumspili í mars í fyrra og varði tæplega helming skota sem hann fékk á sig. Það gæti því reynst þrautin þyngri fyrir íslenska liðið að finna fyrst leiðir í gegnum vörnina, sem Dagur hefur án efa fóðrað með fullt af gagnlegum upplýsingum, og svo framhjá Kuzmanovic. Gangi það vel, og vinni Ísland sigur, enda strákarnir okkar efstir í milliriðli IV, sama hvernig fer gegn Argentínu á sunnudaginn.
HM karla í handbolta 2025 Tengdar fréttir Snorri Steinn getur bætt met Gumma Gumm í kvöld Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur unnið fjóra fyrstu leiki sína á heimsmeistaramótinu í ár og jafnar bæði og slær met með sigri í fimmta leiknum í röð í kvöld. 24. janúar 2025 09:22 „Þetta er svona svindlmaður“ Viktor Gísli Hallgrímsson hefur átt magnað heimsmeistaramót til þessa enda hefur hann átt stórleiki í íslenska markinu leik eftir leik. Strákarnir í Besta sætinu spöruðu ekki stóru orðin um einn besta markvörðinn á heimsmeistaramótinu. 24. janúar 2025 08:31 „Fór langt á harða gæjanum og hrokanum“ Fátt hefur glatt meira á heimsmeistaramótinu í Zagreb en frammistaða Arons Pálmarssonar. Hann hefur gengið í endurnýjun lífdaga í landsliðsbúningnum og leikið við hvurn sinn fingur. 24. janúar 2025 08:01 „Þeir voru pottþétt að spara“ „Mér finnst við ennþá eiga inni einn gír en við erum búnir að gera þetta mjög fagmannlega hingað til og þurfum að gera það áfram,“ segir Elliði Snær Viðarsson, sem hefur, líkt og aðrir landsliðsmenn Íslands, leikið vel á HM í Zagreb. 23. janúar 2025 18:01 Mest lesið Dansað á línunni á Extraleikunum: „Ég labba nefnilega skakkt bara yfirhöfuð“ Sport Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Eggaldin-bóndinn lét geitunginn ekki koma í veg fyrir sigur Sport Barði sig til blóðs eftir tap á HM Sport Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Enski boltinn Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út Körfubolti „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Íslenski boltinn „Átta mig ekki á því af hverju það er víti og rautt“ Sport Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Einar Bragi fór mikinn í mikilvægum sigri Afhentu Akureyringum fimmta tapið í röð Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Leik lokið: Haukar - KA/Þór 35-20 | Þriggja leikja taphrinu lokið með fimmtán marka sigri Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Sjá meira
Snorri Steinn getur bætt met Gumma Gumm í kvöld Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur unnið fjóra fyrstu leiki sína á heimsmeistaramótinu í ár og jafnar bæði og slær met með sigri í fimmta leiknum í röð í kvöld. 24. janúar 2025 09:22
„Þetta er svona svindlmaður“ Viktor Gísli Hallgrímsson hefur átt magnað heimsmeistaramót til þessa enda hefur hann átt stórleiki í íslenska markinu leik eftir leik. Strákarnir í Besta sætinu spöruðu ekki stóru orðin um einn besta markvörðinn á heimsmeistaramótinu. 24. janúar 2025 08:31
„Fór langt á harða gæjanum og hrokanum“ Fátt hefur glatt meira á heimsmeistaramótinu í Zagreb en frammistaða Arons Pálmarssonar. Hann hefur gengið í endurnýjun lífdaga í landsliðsbúningnum og leikið við hvurn sinn fingur. 24. janúar 2025 08:01
„Þeir voru pottþétt að spara“ „Mér finnst við ennþá eiga inni einn gír en við erum búnir að gera þetta mjög fagmannlega hingað til og þurfum að gera það áfram,“ segir Elliði Snær Viðarsson, sem hefur, líkt og aðrir landsliðsmenn Íslands, leikið vel á HM í Zagreb. 23. janúar 2025 18:01