Toppliðið keyrði yfir lærisveina Guðjóns Vals í lokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2024 19:54 Guðjón Valur Sigurðsson sá sína menn í Gummersbach gera vel þar til í lokin þegar allt fór úrskeiðis. Getty/Tom Weller Melsungen hélt toppsætinu eftir fimm marka útisigur í Íslendingaslag í þýsku handboltadeildinni í kvöld.
Melsungen vann þá 29-24 sigur á Gummersbach eftir frábæran endasprett. Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach stóðu vel í toppliðinu og voru marki yfir, 21-20, þegar ellefu mínútur voru eftir. Þá snerist leikurinn. Melsungen vann lokamínútur leiksins 9-3 og tryggði sér mikilvægan sigur í toppbaráttunni. Elvar Örn Jónsson var með tvö mörk og eina stoðsendingu fyrir Melsungen en nýtti aðeins tvö af sex skotum sínum. Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað. Timo Kastening var markahæstur með níu mörk. Þetta var fjórði deildarsigur liðsins í röð. Teitur Örn Einarsson skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach í leiknum. Elliði Snær Viðarsson var í leikmannahópi liðsins en skoraði ekki. Kristjan Horzen var markahæstur með sjö mörk. Melsungen er á toppnum með þrettán sigra í fimmtán leikjum og 26 stig. Gummersbach er í áttunda sæti með 16 stig en liðið hefur tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum.
Þýski handboltinn Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira