Aronslausir FH-ingar unnu nýliðana Smári Jökull Jónsson skrifar 12. október 2024 19:31 Úr leik FH frá síðustu leiktíð. vísir/Diego Íslandsmeistarar FH unnu nokkuð þægilegan sigur á Fjölni þegar liðin mættust í Kaplakrika í Olís-deildinni í kvöld.
Aron Pálmarsson var ekki í leikmannahópi FH í dag en hann á við meiðsli að stríða og þá var Ásbjörn Friðriksson ekki heldur með. Hins vegar var Ólafur Gústafsson mættur til leiks hjá Hafnfirðingum eftir meiðsli að undanförnu. Fjölnir er nýliði í Olís-deildinni og því var búist við sigri FH sem vann Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð. Þeir voru með frumkvæðið í fyrri hálfleiknum en Fjölnismenn þó aldrei langt undan. Munurinn varð mestur þrjú mörk en staðan í hálfleik var 12-10 fyrir FH. Heimamenn settu hins vegar í næsta gír í upphafi síðari hálfleiks. Þeir komust í 18-12 eftir tíu mínútna leik og eftir það var nokkuð ljóst hvar sigurinn myndi enda. FH vann að lokum sjö marka sigur, lokatölur 25-18. Jón Bjarni Ólafsson og Símon Michael Guðjónsson voru markahæstir hjá FH í dag með fimm mörk og þá var Daníel Freyr Andrésson frábær í markinu og varði 16 skot eða helming þeirra skota sem hann fékk á sig. Hjá Fjölni var Haraldur Björn Hjörleifsson markahæstur með fimm mörk og Bergur Bjartmarsson var öflugur í markinu með 37% vörslu. FH tyllir sér á topp Olís-deildarinnar með sigrinum og er með níu stig en hefur leikið einum leik fleira en flest lið deildarinnar. Fjölnir er í 9. sæti með fjögur stig.
Olís-deild karla FH Fjölnir Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Sjá meira