Vanskil fyrirtækja „ekki til marks um almenna breytingu“ hjá viðskiptavinum
![S&P horfir nú með jákvæðari hætti en áður til þeirrar efnahagslegu áhættu sem íslenskir bankar standa frammi fyrir.](https://www.visir.is/i/C4E6FADFAAC00E7711A34D290E9EC8FD341EE6A86960AC590326AE9AF52D4B6E_713x0.jpg)
Íslandsbanki hefur ekki fundið fyrir mikilli aukningu í vanskilum hjá fyrirtækjum á undanförnum mánuðum, hvorki lengri né skemmri tíma vanskilum, segir fjármálastjóri Íslandsbanka. Heildarvanskil hjá fyrirtækjum í viðskiptum við Landsbankans hafa lítið eitt aukist frá áramótum en breytingin er „óveruleg og er ekki til marks um almenna breytingu hjá okkar viðskiptavinum.“