Innlent

Land­læknir rann­saki um­mæli for­manns Geð­lækna­fé­lagsins

Bjarki Sigurðsson skrifar
Vilhjálmur Hjálmarsson er formaður ADHD-samtakanna.
Vilhjálmur Hjálmarsson er formaður ADHD-samtakanna. Vísir/Vilhelm

ADHD-samtökin segja að bregðist Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ekki við mikilli lengingu biðlista fullorðna eftir ADHD-greiningu geti biðtími fólks farið vel á annan áratug. Um fjögur þúsund einstaklingar bíði nú eftir greiningu. Einnig er óskað eftir því að landlæknir rannsaki fullyrðingar formanns Geðlæknafélags Íslands.

Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi ADHD-samtakanna í gær. Þar segir að biðlistar eftir greiningu og meðferð hafi meira en tvöfaldast á síðustu árum. 

„Biðtími fullorðinna eftir ADHD greiningu og meðferð verður að óbreyttu vel á annan áratug hjá þeim sem nú hefja ferlið samkvæmt tilvísun Heilsugæslulæknis – vel á annan áratug!“ segir í ályktuninni. 

Vilja rannsaka formanninn

Samtökin skora einnig á Ölmu Möller landlækni að hefja ítarlega rannsókn á fullyrðingum frá Karli Reyni Einarssyni, formanni Geðlæknafélags Íslands, um óvandaðar og tilefnislausar ADHD-greiningar sálfræðinga og annarra geðlækna og óhóflegar lyfjaávísanir lækna vegna ADHD.

„Slíkar dylgjur frá m.a. helsta talsmanni geðlækna á Íslandi, sem hingað til hefur ekki verið mótmælt opinberlega af einum einasta geðlækni, lækni eða sálfræðingi, hljóta að gefa tilefni til tafarlausra aðgerða af hálfu landlæknis, enda ber þessum starfsstéttum að vinna samkvæmt skýrum leiðbeiningum Embættis landlæknis um greiningu og meðferð vegna ADHD og ber embættið jafnframt eftirlitsskildu með starfsemi heilbrigðisstarfsfólks,“ segir í ályktuninni. 

Karl Reynir Einarsson er formaður Geðlæknafélags Íslands.Vísir/Vilhelm

Vegi að starfsheiðri kollega sinna

Með órökstuddum fullyrðingum sínum hafi Karl Reynir vegið alvarlega að starfsheiðri sálfræðinga, geðlækna og lækna sem koma að þjónustu fólks með ADHD á Íslandi. 

„Málflutningur þessi hefur skapað mikið vantraust um verklag og vinnubrögð heilbrigðisstarfsfólks og á sama tíma stórskaðað málstað þeirra sem krefjast stórbættrar og sjálfsagðrar þjónustu hins opinbera fyrir fólk með ADHD. Landlæknir einn, getur og verður að bregðast við og endurvekja traust á þessari mikilvægu heilbrigðisþjónustu,“ segir í ályktuninni. 

Karl Reynir og Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD-samtakanna, mættust í Pallborðinu hér á Vísi í nóvember á síðasta ári um ofgreiningu ADHD á Íslandi. Hægt er að sjá þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan. 

Klippa: Pallborðið: Er verið að ofgreina ADHD?


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×