Viðskipti innlent

Bygginga­­fram­­kvæmdir ó­ra­­langt frá settum mark­miðum

Jakob Bjarnar skrifar
Smiðir við vinnu á fullu tungli. Það er ekki þeim að kenna að húsnæðisuppbyggingin er með þeim hætti að hún mætir aðeins 56 prósentum af íbúðaþörf.
Smiðir við vinnu á fullu tungli. Það er ekki þeim að kenna að húsnæðisuppbyggingin er með þeim hætti að hún mætir aðeins 56 prósentum af íbúðaþörf. vísir/vilhelm

Þrátt fyrir að hátt ákall um að fleiri íbúðir verði byggðar, staðan á húsnæðismarkaði sé skelfileg, hefur umfang nýrra framkvæmda dregst saman um þriðjung milli ára.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef HMS, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar en eitt meginhlutverk stofnunarinnar er að tryggja húsnæðisöryggi með því að auka aðgengi almennings að viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði, hvort heldur er til eignar eða leigu. 

Niðurstöður marstalningar á íbúðum í byggingu segja að við séum óralangt frá því markmiði. Kolsvört staða blasir því enn við í húsnæðismálum landsmanna.

Langt frá því að halda í horfinu

Framkvæmdir eru hafnar við byggingu á 9,3 prósentum færri íbúðum en á sama tíma í fyrra. Fjöldi íbúða eru á sama framvindustigi og þær voru fyrir ári. HMS býst við 3.020 fullbúnum íbúðum í ár og 2.768 íbúðum á næsta ári. Þetta myndi aðeins mæta 56 prósentum af áætlaðri íbúðaþörf. 

Alls voru framkvæmdir hafnar á 7.937 íbúðum um land allt í mars, samanborið við 8.683 íbúðir í september á síðasta ári og 8.791 í mars 2023. Við höldum ekki í horfinu heldur erum að fjarlægjast það markmið að uppfylla húsnæðisþörf.

Byggingaframkvæmdir í Smáranum. Ljóst er að herða þarf mjög á byggingarframkvæmdum ef það á að nálgast húsnæðistþörf landsmanna.vísir/vilhelm

Samkvæmt talningunni er uppbygging íbúða mest á höfuðborgarsvæðinu en þar eru tæp sjötíu prósent af öllum íbúðum í byggingu. Flestar í Reykjavík (2.283 íbúðir) og næstflestar í Hafnarfirði (1.490 íbúðir). Utan höfuðborgarsvæðisins eru flestar íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu Árborg (474 íbúðir) og Reykjanesbæ (370 íbúðir).

„Íbúðum í byggingu fækkar í flestum sveitarfélögum, en mest í Reykjavíkurborg þar sem þær voru 324 færri en í síðustu talningu, sem jafngildir 12,4% samdrætti. Í Hafnarfjarðarbæ fækkar íbúðum í byggingu næst mest, en þær voru um 115 færri en í fyrrahaust, sem jafngildir 7,2% samdrætti.“

Mætir 56 prósent af íbúðaþörf

Í fáeinum sveitarfélögum fjölgaði íbúðum í byggingu hins vegar á milli talninga, mest í Akureyrarbæ, en þar nam hún 17,3% frá því í fyrrahaust, þar sem 47 fleiri íbúðir voru í byggingu. Og í Mýrdalshreppi fjölgaði íbúðum í byggingu svo um 16 á milli talninga sem nemur um 64% fjölgun.

HMS

Alls eru 1.880 íbúðir í framkvæmdum standa í stað á milli talninga sem bendir til þess að byggingaraðilar séu enn að halda að sér höndum í einhverjum verkefnum.

Í tilkynningunni frá HMS er áætluð íbúðaþörf, samkvæmt miðspá í Mælaborði húsnæðisáætlana, 4.208 íbúðir fyrir árið 2024 og 4.921 íbúð fyrir árið 2025. Að auki leiða búferlaflutningar Grindvíkinga til aukinnar húsnæðisþarfar á þessu ári og því næsta, en um 1.200 íbúðir eru skráðar í bænum.

„HMS metur því að íbúðaþörf fyrir árin 2024 og 2025 nemi yfir 10 þúsund íbúðum, á meðan fullbúnum íbúðum muni aðeins fjölga um 5.788 talsins. Fjöldi íbúða sem stofnunin áætlar að koma á markað á þessu ári og því næsta mun því einungis fullnægja um 56 prósent af íbúðaþörf.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×