Viðskipti innlent

Meiri­hluti ó­­á­­nægður með á­form Lands­bankans

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ekki liggur fyrir hvort merki TM verður einnig málað utan á nýjar höfuðstöðvar Landsbankans, gangi kaupin í gegn.
Ekki liggur fyrir hvort merki TM verður einnig málað utan á nýjar höfuðstöðvar Landsbankans, gangi kaupin í gegn. Vísir/Vilhelm

Meirihluti þjóðarinnar er óánægður með fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Þetta leiðir ný könnun Prósents í ljós.

Svarendur voru spurðir hversu ánægðir eða óánægðir þeir væru með áform Landsbankans um kaupin, og sögðust 55 prósent þeirra vera óánægðir. Þrettán prósent sögðus hins vegar ánægð en 32 prósent sögðust hvorki ánægð né óánægð.

Þá voru konur að jafnaði óánægðari með áformin en karlar, en 59 prósent kvenna sögðust óánægð en 51 prósent karla. Þá eru aðeins sex prósent kvenna ánægð með áformin, en 18 prósent karla.

Konur eru óánægðari með fyrirhuguð áform Landsbankans um kaup á TM en karlar.Prósent

Ef litið er á afstöðu með tilliti til aldurs er mesta óánægjan hjá aldurshópnum 35 til 44 ára, eða 66 prósent, á meðan hún er minnst hjá fólki á aldrinum 18 til 24 ára, eða 33 prósent. Í þeim aldursflokki sögðust þó 55 prósent hvorki ánægð né óánægð. 

Ánægja/óánægja eftir aldri. Prósent

Gögnum könnunarinnar var safnað frá 20. febrúar til 27. mars í netkönnun meðal könnunarhóps Prósents. Úrtakið taldi 1900 manns og var svarhlutfall 51 prósent. 

Fjármálaráðherra meðal óánægðra

Meðal þeirra sem falla myndu í flokk óánægðra með kaupin er sennilega Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra. Hún hefur lýst einarðri andstöðu sinni við að Landsbankinn, sem ríkið fer með 98,2 prósenta eignarhlut í, kaupi tryggingafélag á markaði. Hefur hún meðal annars vísað til stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að draga eigi jafnt og þétt úr eignarhaldi ríkisins í fjármálakerfinu. Því séu áform Landsbankans þvert gegn eigendastefnunni.

Á sama tíma hefur verið deilt um hvort forsvarsmenn Landsbankans hafi gert nóg til að upplýsa Bankasýslu ríkisins, sem fer með eignarhlut ríkisins í bankanum, um að óskuldbindandi tilboð í TM hafi verið gert í desember. Formaður bankaráðs bankans fullyrðir að svo hafi verið, en svör bankasýslunnar hafa verið loðin og lengi að berast.


Tengdar fréttir

Gætu orðið tafir á að „Kvika fái peningana sína“ vegna sölu á TM

Yfirgnæfandi líkur eru á að sala Kviku á TM til Landsbankans gangi eftir en hins vegar gætu orðið tafir á sölunni og þar með að „Kvika fái peningana sína,“ að mati hlutabréfagreinenda. Hann reiknar með að Kvika hafi þurft að binda nokkrum milljörðum meira af eigin fé við að eiga tryggingafélagið og geta bankans til útlánavaxtar aukist því við söluna.

Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali

Óljóst er hvort formaður bankaráðs Landsbankans hafi minnst á að óskuldbindandi kauptilboð hafi verið gert í TM tryggingar í símtali við stjórnarformann Bankasýslunnar í desember eða hvort tilefni símtalsins hafi verið að ræða tilboðið. Bankasýslan hefur ekki staðfest hvort tilboðið hafi verið rætt í símtalinu, sem formaður bankaráðs fullyrðir.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×