Lífið

Hjólhýsabyggðin á Laugar­vatni og Húsið á Eyrar­bakka

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Margar mjög skemmtilegar myndir eru á sýningunni frá tímum hjólhýsabyggðarinnar á Laugarvatni.
Margar mjög skemmtilegar myndir eru á sýningunni frá tímum hjólhýsabyggðarinnar á Laugarvatni. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Ljósmyndasýning með broti af því besta frá hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni hefur verið opnuð í Húsinu á Eyrarbakka en svæðið var starfrækt í 45 ár, eða þar til því var lokað af öryggisástæðum.

Ljósmyndararnir Þórdís Erla Ágústsdóttir og Sigríður Marrow mynduðu hjólhýsabyggðina á Laugarvatni í þrjú sumur á meðan hún var og hét og er afraksturinn nú til sýnis hjá Byggðasafni Árnesinga í Húsinu á Eyrarbakka en þar áður var sýningin í Þjóðminjasafni Íslands. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar ákvað að loka svæðinu 2022 af öryggisástæðum vegna eldhættu. Sýningin heitir; “Ef garðálfar gætu talað”.

„Við vorum ekki alveg vissar hvernig okkur yrði tekið eða hvað tæki á móti okkur en við tók þessi blómlega og fallega byggð og okkur svo vel tekið alls staðar. Það vildu allir vera með, þetta var svo yndislegt fólk og bara einstakur heimur,” segir Sigríður.

„Salurinn hérna passar mjög vel fyrir þessa sýningu því hann gefur þessa hlýlegu vídd, auka vídd á myndirnar. Þetta er svolítið eins og að vera í sólskini, sumri og sólskini þegar maður kemur hérna inn í þennan sal og sér þessar myndir og gefur innsýn inn í það hvað þessi heimur var góður,” segir Þórdís Erla og bætir við.

„Og hvað það var góð stemming þarna, það er líka málið, fólki leið vel, fólk tengdist vinaböndum og var kannski með heilu fjölskyldurnar með sér í hjólhýsunum.”

Vinkonurnar og ljósmyndararnir, Þórdís Erla Ágústsdóttir (t.v.) og Sigríður Marrow, sem tóku myndirnar á sýningunni.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Linda Ásdísardóttir, safnvörður hjá Byggðasafni Árnesinga átti upphaflegu hugmyndina að sýningunni.

„Og hún breytist auðvitað alveg gríðarlega við það að fara úr stórum sal, myndasalnum í Þjóðminjasafninu í þessa litlu borðstofu. Það verður einhvern vegin svona meira sólskin kannski hérna eins og þið sjáið og gardínurnar meira að segja hérna í stofunni,” segir Linda.

Linda Ásdísardóttir safnvörður hjá Byggðasafni Árnesinga, sem átti upphaflegu hugmyndina að sýningunni.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Ljósmyndasýningin verður opin í Húsinu á Eyrarbakka alla páskana, frítt inn og allir velkomnir.

Heimasíða Byggðasafns Árnesinga

Hjólhýsabyggðin var á Laugarvatni í 45 ár og eiga margir mjög góðar minningar þaðan.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Húsið á Eyrarbakka þar sem sýningin er.Magnús Hlynur Hreiðarsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×