Inter mis­tókst að ná tíu stiga for­ystu á ný

Smári Jökull Jónsson skrifar
Það var hart barist í Mílanó í kvöld.
Það var hart barist í Mílanó í kvöld. Vísir/Getty

Ríkjandi Ítalíumeistarar í Napoli náðu í eitt stig í ferð sinni til Mílanóborgar þar sem liðið mætti toppliði Inter.

Fyrir leikinn var Inter með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar en titilvörn Napoli hingað til hefur verið hörmung og var liðið í 7. sæti og ekki á leið í Evrópukeppni á næsta tímabili með sama áframhaldi.

Heimamenn komust yfir í fyrri hálfleik þegar Matteo Darmian skoraði með skoti úr teignum eftir sendingu Alessandro Bastoni. Staðan í hálfleik var 1-0 og það var flest sem stefndi í sigur Inter þegar Juan Jesus jafnaði metin á 81. mínútu. Hann var þá aleinn á fjærstönginni eftir hornspyrnu og skoraði auðveldlega.

Lokatölur 1-1 og Inter með átta stiga forskot á toppi Serie A og stefna, þrátt fyrir jafnteflið í dag, hraðbyri á meistaratitilinn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira