Handbolti

Ís­lenska lífið heillaði

Aron Guðmundsson skrifar
Eftir ellefu ár úti í atvinnumennsku er handboltamaðurinn Oddur Gretarsson á heimleið. Hann flytur með fjölskyldu sinni heim til Akureyrar af loknu yfirstandandi tímabili og gengur til liðs við uppeldisfélagið Þór
Eftir ellefu ár úti í atvinnumennsku er handboltamaðurinn Oddur Gretarsson á heimleið. Hann flytur með fjölskyldu sinni heim til Akureyrar af loknu yfirstandandi tímabili og gengur til liðs við uppeldisfélagið Þór Mynd:Balingen

Vinstri horna­maðurinn Oddur Gretars­son er núna að ganga í gegnum sína síðustu mánuði úti í at­vinnu­mennsku í hand­bolta í Þýska­landi. Eftir ellefu ár úti í mennskunni eru nú á döfinni flutningar heim með fjöl­skyldunni, konu og tveimur dætrum, heim á æsku­slóðirnar á Akur­eyri þar sem að hann kemur til með að leika fyrir upp­eldis­fé­lag sitt Þór. Fjöl­skyldan var farinn að þrá ís­lenska lífið.

Oddur hefur undan­farin ár verið á mála hjá þýska úr­vals­deildar­fé­laginu HBW Balin­gen-Weil­stet­ten en í síðasta mánuði á­kvað þessi 33 ára gamli horna­maður að nýta sér á­kvæði í samningi sínum, rifta honum, eftir að kallið kom frá upp­eldis­fé­laginu Þór á Akur­eyri.

„Það hefur svo sem alveg blundað í mér síðustu tvö til þrjú ár að halda aftur heim á leið en ekki af eins mikilli al­vöru og var raunin núna,“ segir Oddur í samtali við Vísi. „Við fjöl­skyldan fórum að hugsa um þetta núna rétt fyrir jól á síðasta ári og Þórsararnir heyrðu svo í mér fljót­lega núna á nýju ári. Þá hófust við­ræður og okkur leist mjög vel á það sem að for­ráða­menn fé­lagsins höfðu fram að færa. Sýn þeirra á komandi ár.“

Það er þó óvíst hvort að Oddur muni leika með liði Þórs í efstu eða næstefstu deild á næsta tímabili. Liðið er í harðri baráttu um sæti í efstu deild þessi dægrin en aðspurður segir hornamaðurinn knái það ekki skipta sig höfuðmáli í hvor deildinni liðið verði þó svo að efsta deild heilli meira. Hann muni, sama hver staðan er, leggja sig allan fram. 

„Sýn félagsins á næstu ár var á meðal þess sem gerði það að verkum að okkur fannst það rétti tíma­punkturinn núna að fara halda heim á leið til Ís­lands. Þegar að það var staðan sem við fundum okkur í þá kom ekkert annað til greina en að ganga til liðs við upp­eldis­fé­lagið á nýjan leik. Halda heim til Akur­eyrar. Við erum mjög á­nægð með þessa á­kvörðun. Til­hlökkunin er mjög mikil.“

Notið tímans í Þýskalandi

Öll spilin hafi raðast full­kom­lega saman fyrir fjöl­skylduna.

„Ég átti í rauninni eitt ár eftir af samningi mínum hérna við Balin­gen. Það var þó á­kvæði í þeim samningi sem gerði mér kleift að segja honum upp núna í febrúar. Núna fyrir ára­mót var ég svo sem ekkert al­var­lega að pæla í því að fara heim.

Mér per­sónu­lega gengur mjög vel hérna úti og það sama er hægt að segja um fjöl­skylduna. Það gefur mér mjög mikið að spila í Þýska­landi og okkur hefur alltaf liðið og líður mjög vel hérna í Balin­gen. Okkur fannst bara ein­hvern veginn bara rétti tíma­punkturinn fyrir mig sem hand­bolta­mann sem og fjöl­skylduna í heild sinni að koma okkur heima. 

Eftir­væntingin hjá okkur fyrir því að flytja heim til Akur­eyrar er mjög mikil en það eru nú þrír mánuðir eftir af veru okkar hérna úti í Þýska­landi. Ég ætla að gefa allt mitt til þess að hjálpa Balin­gen að ná sínum mark­miðum. Þau snúa að því að við höldum okkar sæti í þýsku úr­vals­deildinni.“

Fá að upplifa æskuslóðir foreldra sinna

Oddur og Katrín Emma með dætrum sínum tveimur á góðri stundu í ÞýskalandiAðsend mynd

Oddur snertir þarna á fjöl­skyldu hliðinni á þessum skiptum en saman eiga Oddur og unnusta hans, Katrín Emma Jóns­dóttir, tvær dætur. Sú eldri er sjö ára en sú yngri þriggja ára. Oddur og Katrín eru bæði miklir Akur­eyringar og tæki­færið til þess að leyfa dætrum þeirra að upp­lifa æsku­árin á staðnum sem þau ólust upp á reynist of gott til þess að hafna.

„Eldri dóttir okkar er í fyrsta bekk hér í grunn­skóla í Þýska­landi. Það var svona einn punktur við þennan flutning heim að okkur langaði frekar að hún gengi í ís­lenskan skóla. Okkur fannst þetta réttur tíma­punkturinn fyrir báðar dætur okkar að flytja heim. 

Þar spilar stóra rullu að ömmur þeirra og afar búa öll á Akur­eyri og við erum öll miklir Akur­eyringar, eigum þar fullt af vina­fólki og fjöl­skyldu sem okkur hlakkar mikið til að verja meiri tíma með. Okkur var farið að langa að lifa ís­lensku lífi.“

Sýndur mikill skilningur

Oddur segir for­ráða­menn Balin­gen sýna hans á­kvörðun, að rifta samningi sínum við fé­lagið og halda heim á leið, mikinn skilning.

„Við höfum átt mjög gott sam­starf þessi ár sem að ég hef verið á mála hjá liðinu. Það er mikill skilningur af hálfu fé­lagsins á þessari á­kvörðun minni. Sér­stak­lega í því ljósi að ég væri að flytja aftur heim á æsku­slóðirnar. Þetta var því ekkert vesen. Þessu var bara tekið vel.“

Veru Odds er­lendis í at­vinnu­mennsku, sem spannar ein­hver ellefu ár, fer því að ljúka og hefur hann ekki hug á því að snúa aftur út.

„Þetta er langur tími, sem maður hefur varið hérna úti í at­vinnu­mennskunni. Fyrst og fremst er ég bara þakk­látur fyrir að hafa fengið að spila hand­bolta hérna úti og að hafa haft það sem at­vinnu mína. Það eru for­réttindi og hefur verið frá­bært. Þegar að ég lít til baka er ég mjög á­nægður með þennan tíma. Bæði minn feril sem og tímann sem að við fjöl­skyldan höfum varið hérna saman.“

Oddur Gretarsson hefur spilað sem atvinnumaður í rúman áratug en snýr heim í sumar.Getty/Tom Weller

„Á þessum árum höfum við eignast marga vini til lífs­tíðar. Kynnst fullt af fólki, bæði í kringum hand­boltann en líka í gegnum börnin okkar og ná­grenni okkar. Það er alveg stórt stökk að flytja heim, þá kannski sér­stak­lega fyrir stelpurnar sem þurfa að skilja við vini sína hérna úti. 

Við vissum svo sem alltaf að við myndum enda heima en munum kveðja Þýska­land og sér í lagi Balin­gen með söknuði. Á móti kemur erum við mjög spennt fyrir komandi tímum.“

Hefur verið mikið hark

Þessi tími úti í at­vinnu­mennsku. Hefur hann staðist væntingar? Hefur þetta verið miklu stærra og meira en þú þorðir að vona?

„Til að byrja með var þetta mjög mikið hark. Maður kemur út með slitið kross­band á sínum tíma. Það var mjög krefjandi tíma­bil sem maður gekk í gegnum þá en náði þó að vinna sig út úr því. Maður kynntist at­vinnu­mennskunni fljótt. Það er mun meiri sam­keppni um stöður og ef maður slakar eitt­hvað á þá missir maður stöðuna sína. Það er nú bara þannig.

Oddur Gretarsson í leik með BalingenBalingen

Ég hef tekið harkið í annarri deildinni hérna úti lengi vel. Ég held að ég fari með rétt mál þegar að ég segi að ég eigi að baki sex tíma­bil í efstu deild og fimm í næst­efstu. Hef verið að flakka á milli. Um­hverfið og um­gjörðin í kringum hand­boltann hérna úti í Þýska­landi er öll mjög stór. Eins og Þjóð­verjarnir segja nú stoltir hérna þá er þýska úr­vals­deildin sterkasta deild í heimi.

Ég er bara þakk­látur fyrir að hafa fengið að upp­lifa þetta. Ég var núna á dögunum að spila í síðasta skiptið á leik­vangi þýska stór­liðsins Kiel og mun njóta þess til hins ítrasta næstu vikurnar að fá að spila í þessum stóru hand­bolta­höllum í síðasta sinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×