Tónlist

„Var núll að búast við því að ég myndi vinna“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Anna Fanney er nýkrýndur sigurvegari Idolsins.
Anna Fanney er nýkrýndur sigurvegari Idolsins. Vísir/Hulda Margrét

„Ég var 100% bara að bíða eftir því að nafnið hennar Jónu yrði kallað upp,“ segir nýkrýndi Idol sigurvegarinn Anna Fanney í samtali við Brennsluna á FM957 í morgun. Hún segist ótrúlega þakklát fyrir sigurinn og hlakkar til að demba sér í stúdíóið.

Bjóst engan veginn við sigri

Sería tvö af Idolinu endaði með pomp og prakt síðastliðið föstudagskvöld. Anna Fanney og Jóna Margrét stóðu tvær eftir og var það Anna Fanney sem bar sigur úr býtum.

„Ég er bara svo ótrúlega þakklát. Ég fann virkilega fyrir stuðningnum, það var alltaf verið að senda einhver skemmtileg skilaboð á okkur og ég held að allir í topp átta hópnum hafi fundið fyrir stuðningnum.“

Sigurinn virtist sannarlega hafa komið Önnu Fanneyju í opna skjöldu og var hún yfirveguð áður en úrslitin voru tilkynnt.

„Ég var núll að búast við því að ég myndi vinna. Ég var 100% að bíða eftir því að nafnið hennar Jónu yrði kallað upp þannig að ég var bara brosandi og ætlaði bara að njóta og standa þarna.“

Anna Fanney segist ekki hafa búist við sigri og eins og sjá má hér brá henni þegar sigurvegarinn var tilkynntur. Vísir/Hulda Margrét

Algjörlega orðlaus og zone-aði út

Í kjölfar sigursins þurfti Anna Fanney að taka lagið sem hún segir að hafi verið hálf súrrealískt móment.

„Röddin mín var ekki tilbúin til þess að taka lagið aftur þannig að ég fór bara að hlæja og hafði gaman að þessu, segir Anna Fanney hlæjandi en hún sagði meðal annars sorry í flutningnum sem þáttastjórnendum Brennslunnar fannst mjög fyndið.

Ég var í sjokki. Núna þegar ég horfi til baka á þáttinn fatta ég að ég þakkaði engum fyrir eða neitt. Ég var án gríns orðlaus og vissi ekkert hvað ég ætti að segja.“

Ætlar að kaupa sér bíl og fagnaði á flöskuborði

Aðspurð hvað hún sjái fyrir sér að gera fyrir sigurféð er að minnsta kosti eitt sem hana bráðvantar.

„Það er bíll, ég þarf bíl. Mamma skutlaði mér hingað,“ segir Anna Fanney og bætir við að kærastinn hennar muni aðstoða hana við valið.

Helgin var með sanni viðburðarík hjá henni og fagnaði hún með stæl.

„Það var smá wrap party með hópnum eftir útsendinguna. Svo var kærastinn minn með flöskuborð niðri í bæ þannig að ég fór bara beint á flöskuborð og skemmti mér vel.“

Vakti hún að sjálfsögðu athygli Idol aðdáenda í bænum.

„Það voru nokkrir sem komu og báðu um mynd,“ segir Anna Fanney hlæjandi og bætir við: „Það var bara gaman.“

„Ótrúlega spennt“ að byrja að vinna að plötu

Idol sigurinn er fyrsta skrefið í tónlistarferli Önnu Fanneyjar og má segja að það séu spennandi tímar framundan. Næstu skref eru eftirfarandi:

„Ég er bara ótrúlega spennt að mæta upp í stúdíó. Ég kann ekki að semja texta sjálf en ég er byrjuð að punkta niður hvernig ég myndi vilja hafa lögin og einhverjar pælingar. 

Ég er ótrúlega spennt að vera með þetta tækifæri. Ég er vanalega á byrjunarreit en núna fæ ég þá hjálp sem ég þarf.“

Anna Fanney vakti mikla athygli í fyrstu Idol prufunni sinni síðastliðið haust þar sem flutningurinn grætti dómarann Daníel Ágúst. Hún sagðist þá varla þora að syngja fyrir framan mömmu sína en á þó að baki sér reynslu í tónlistarheiminum. Tólf ára gömul tók hún þátt í hæfileikakeppninni Ísland Got Talent og sem unglingur keppti hún í söngvakeppni Samfés.

„Ég tók smá pásu frá söngnum eftir það.“

Hér má sjá fyrstu áheyrnaprufu Önnu Fanneyjar: 

Bæði leiðinlegt og þægilegt að vera búin

Nú er Anna Fanney komin með plötusamning og segist vonandi byrja að vinna að nýju efni í vikunni. Hún segir sannarlega viðbrigði að seríunni sé nú lokið.

„Það er mjög skrýtið að ég sé ekki á æfingu núna. Þetta er bæði leiðinlegt og þægilegt, svarar Anna Fanney aðspurð hvort það sé smá léttir að keyrslunni sé lokið.“

Hún hefur nú komist að lokaniðurstöðu um hver hafi verið hennar uppáhalds dómari.

„Ég er búin að breyta í Herra Hnetusmjör. Hann var alltaf í svo góðu skapi og skemmtilegur.“

Trúði ekki að hún kæmist í topp átta

Hún segir ótrúlegt að líta yfir þátttöku sína í vetur.

„Þegar maður sér mig í byrjuninni á þessu ferli, ég var ótrúlega lítil í mér og átti enga von um að komast í topp átta, hvað þá að vinna keppnina.“

Hún segir að þessi reynsla hafi reynt á félagslegu hliðina og hún hafi þurft að ögra sér.

„Ég þorði varla að tala við neinn í millistiginu. Ég byrjaði mest að tala við þau þegar ég var komin í topp átta,“ segir Anna Fanney og bætir við að hún hafi tengt hvað mest við Elísabetu í lokahópnum.

„Ég var mjög leið alltaf þegar fólk var sent heim. Það var aldrei neitt beef. Við vorum einhvern tíma að tala um að við ættum kannski að starfa beef-i til þess að gera þetta áhugaverðara,“ segir hún hlæjandi.

Hér má hlusta á viðtalið við Önnu Fanneyju í Brennslunni í heild sinni:

Anna Fanney var sömuleiðis í viðtali í Bítinu sem má hlusta á hér: 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Idol, skíðaferðir og ástarjátningar

Idol-gleði, skíðaferðir, barneignir og ástin spilaði lykilhlutverk í liðinni viku. Stjörnur landsins fögnuðu ýmsum tímamótum með glæsibrag og febrúar virðist fara vel í mannskapinn. 

Anna Fanney er Idolstjarna Íslands

Anna Fanney Kristinsdóttir er Idolstjarna Íslands. Hún keppti til úrslita í kvöld á móti Jónu Margréti og bar sigur úr býtum.

Vaktin: Anna Fanney er Idolstjarna Íslands

Stóra stundin er handan við hornið og spennan áþreifanleg. Úrslitakvöld Idol er í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Þrjú keppa til úrslita í kvöld, þau Anna Fanney, Björgvin og Jóna Margrét, sem hafa fangað huga og hjörtu þjóðarinnar. Við fylgjumst auðvitað með úrslitakvöldinu og lýsum framvindunni í Vaktinni á Vísi.

Einn keppandi sendur heim fyrir loka-einvígið

Það er komið að því. Ný Idolstjarna Íslands verður krýnd annað kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni. Anna Fanney, Björgvin og Jóna Margrét standa eftir og keppast um að verða næsta Idol-stjarna Íslands. 

Nærmynd af Idol þríeykinu: „Við erum öll búin að sigra“

Spennan magnast í Idolinu og eftir standa þrír. Næstkomandi föstudagskvöld nær spennustigið svo hámarki þegar lokaþáttur Idolsins verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 og í ljós kemur hver stendur uppi sem sigurvegari. Anna Fanney, Björgvin Þór og Jóna Margrét keppast um sigurinn en Lífið á Vísi fékk að kynnast þeim örlítið nánar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×