Handbolti

At­kvæða­miklar í öruggum sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Aldís Ásta var frábær í kvöld.
Aldís Ásta var frábær í kvöld. Handbollsligan

Aldís Ásta Heimisdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir áttu stórleik þegar Skara vann öruggan tíu marka sigur á Hallby í sænsku úrvalsdeild kvenna í handbolta.

Leikurinn var ekki beint spennandi og Skara betri aðilinn frá fyrstu mínútu. Fór það svo að Skara vann með tíu marka mun, lokatölur 34-24.

Aldís Ásta skoraði fimm mörk og gaf þrjár stoðsendingar á meðan Jóhanna skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar.

Með sigrinum fór Skara upp fyrir Hallby í 5. sætið. Skara með 19 stig að loknum 17 leikjum en Hallby stigi minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×