Innlent

Ís­land aldrei fengið jafn slæma ein­kunn á spillingar­lista

Atli Ísleifsson skrifar
Ísland fær 72 stig í mælingunni nú, það er fyrir árið 2023, en fékk 74 í mælingunni 2022.
Ísland fær 72 stig í mælingunni nú, það er fyrir árið 2023, en fékk 74 í mælingunni 2022. Vísir/Vilhelm

Transparency International hefur birt nýjan árlegan lista sinn um spillingu í ríkjum heims. Ísland fellur úr 14. til 17. sæti listans árið 2022 í 19. sætið nú og hefur aldrei mælst neðar.

Mælingin byggir á rannsóknum sérfræðinga og upplifun viðskiptaforkólfa í hverju landi fyrir sig um umfang spillingar innan opinbera geirans. Danmörk skipar sem fyrr efsta sæti listans, það er spilling mælist minnst þar.

Ísland fær 72 stig í mælingunni nú, það er fyrir árið 2023, en fékk 74 í mælingunni 2022. Í tilkynningu frá TI á Íslandi segir að Ísland sé í hópi 23 landa sem fái sögulega slæma einkunn í ár. Þeirra á meðal séu einnig Holland, Svíþjóð og Bretland ásamt Íran, Rússlandi, Tadsíkistan og Venesúela. Alls hafi 28 lönd bætt mælingu sína á milli ára en 34 hafa fallið. 118 lönd standa í stað.

Danmörk skipar fyrsta sætið sjötta árið í röð yfir þau ríki þar sem spilling mælist minnst. Danmörk hlaut líkt og árið 2022, 90 stig í mælingunni í ár, en gefin eru stig frá 0 upp í 100 stig.

Sómalía skipar 180. og neðsta sæti listans, hlaut 11 stig, en þar fyrir ofan eru Venesúela, Sýrland og Suður-Súdan.

Spilling mælist mest í ríkjum sem merkt eru með vínrauðu en minnst í ríkjum sem eru merkt ljósgul.Transparancy International

Efstu sæti listans (þar sem spilling mælist minnst):

  • 1. Danmörk, 90 stig
  • 2. Finnland, 87 stig
  • 3. Nýja-Sjáland, 85 stig
  • 4. Noregur, 84 stig
  • 5. Singapúr, 83 stig
  • 6.-7. Svíþjóð og Sviss, 82 stig
  • 8. Holland, 79 stig
  • 9.-10. Þýskaland og Lúxemborg, 78 stig
  • 11. Írland, 77 stig
  • 12.-13. Kanada og Eistland, 76 stig
  • 14.-15. Ástralía og Hong Kong, 75 stig
  • 16.-18. Belgía, Japan og Úrúgvæ, 73 stig
  • 19. Ísland, 72 stig
  • 20.-23. Austurríki, Frakkland, Seychelleyjar, Bretland, 71 stig.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×