Handbolti

Ýmir í banni á morgun

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ýmir Örn Gíslason fær rauða spjaldið gegn Króatíu.
Ýmir Örn Gíslason fær rauða spjaldið gegn Króatíu. vísir/vilhelm

Enn kvarnast úr íslenska karlalandsliðinu í handbolta fyrir leikinn gegn Austurríki í milliriðli 1 á EM í Þýskalandi á morgun.

Ýmir Örn Gíslason hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í sigrinum á Króatíu í gær, 30-35. Ými sló til Zvonimirs Srna á 10. mínútu og fékk beint rautt spjald frá dómurum leiksins.

Íslenska liðið hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum undanfarinn sólarhring eða svo. Gísli Þorgeir Kristjánsson meiddist snemma leiks gegn Króatíu og hefur lokið leik á EM.

Samherjar Gísla hjá Magdeburg, Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason, misstu af leiknum gegn Króatíu vegna veikinda og þá eru Óðinn Þór Ríkharðsson og Kristján Örn Kristjánsson einnig orðnir veikir.

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hefur kallað í Teit Örn Einarsson, leikmann Flensburg, og hann þarf væntanlega að kalla til fleiri leikmenn til að eiga hreinlega í lið á morgun.

Leikur Íslands og Austurríkis hefst klukkan 14:30 á morgun. Íslendingar þurfa væntanlega að vinna að minnsta kosti fimm marka sigur til að komast í forkeppni Ólympíuleikanna.


Tengdar fréttir

„Kaldur eins og vetrarnótt í Reykjavík“

Óðinn Þór Ríkharðsson er búinn að skora tólf mörk úr tólf skotum í síðustu tveimur leikjum íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í handbolta en það eru tvö þeirra sem standa þó upp úr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×