Handbolti

Haukur og Donni koma inn í hópinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Haukur fær tækifæri í kvöld.
Haukur fær tækifæri í kvöld. vísir/vilhelm

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Ungverjum á eftir.

Snorri gerir breytingar á hópnum. Haukur Þrastarson og Kristján Örn Kristjánsson koma inn í hópinn. Upp í stúku verða því í dag Óðinn Ríkharðsson og Einar Þorsteinn Ólafsson.

Hvorki Haukur né Donni hafa tekið þátt á mótinu til þessa. 

Leikur Íslands og Ungverjalands hefst klukkan 19.30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×