Handbolti

Besta sætið: Það er ekki hægt að dekka þennan mann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Banhidi fagnar einu af mörgum mörkum sínum gegn Íslandi.
Banhidi fagnar einu af mörgum mörkum sínum gegn Íslandi. vísir/getty

Ísland spilar við Ungverjaland á EM í kvöld og eins og svo oft áður snýst umræðan mikið um hvernig við eigum að stoppa línumann Ungverja, Bence Bánhidi.

„Það er ekki hægt að dekka þennan mann,“ segir Bjarni Fritzson í hlaðvarpi íþróttadeildar, Besta sætinu.

Sá gæi er 208 sentimetrar og algjört tröll. Maskína sem er markahæst í ungverska liðinu og leikur Ungverja gengur mjög mikið út á að finna hann. Það er oft auðvelt.

„Það er alltaf verið að tala um að við séum í vandræðum með að dekka stóra og þunga leikmenn. Þá er það bara þannig og mér finnst það í lagi. Við eigum ekki að setja svona mikinn fókus á það hvað við erum í vandræðum með. Ef við stelum 2-3 boltum sem er reynt að koma á línuna þá græðum við,“ bætir Einar Jónsson við.

Þeir Einar og Bjarni kryfja málin til mergjar í þættinum sem má hlusta á hér að neðan og er einnig aðgengilegur á öllum hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×