Lífið samstarf

2024 er ár skemmti­legri deita

Smitten
Á síðustu 3 árum hefur notendum á Smitten fjölgað gríðarlega en tæplega milljón manns hafa sótt appið og hafa notendur lækað yfir 950 milljón sinnum.
Á síðustu 3 árum hefur notendum á Smitten fjölgað gríðarlega en tæplega milljón manns hafa sótt appið og hafa notendur lækað yfir 950 milljón sinnum.

Fyrir marga einhleypa er það mikið feimnismál að fara á deit enda þarf einstaklingurinn stundum að fara út fyrir þægindarammann. Hjá stefnumótaappinu Smitten er mikið lagt upp úr því að gera líf einhleypra enn skemmtilegra en boðið er upp á fjölbreytta leiki sem gerir notendum auðveldara fyrir að hefja samtöl eftir að þau “matcha”.

„Það eru svo margir fítusar í appinu sem einfalda manni allar þessar óþægilegu samræður og spurningar sem eiga það til að koma upp. Með því að fylla út prófílinn og spila leikina sem í boði eru er auðvelt að sjá hvort viðkomandi hafi hoppað úr flugvél, eigi börn, sé að leita sér að sambandi eða elski að fara í náttúrulaugar. Því er auðvelt að hefja samtalið á skemmtilegri hátt en að segja hæhæ,” segir Kristína Reynisdóttir markaðsfulltrúi Smitten.

Árið byrjar á trompi, 7. Janúar með svokölluðum “Dating Sunday”, sem er fyrsti sunnudagur ársins. Þennan sunnudag ár hvert má sjá mesta notkun stefnumótaforrita út um allan heim og eru einhleypir einstaklingar líklegri til þess að byrja nýtt ár á því að skrá sig á stefnumótaöpp, prófa nýja hluti og brjóta ísinn. 

„Smitten hefur nú verið starfrækt i þrjú ár og sjáum við gífurlega aukningu í notkun á appinu þennan dag,” segir Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Smitten.

Tillögur að skemmtilegum deitum

Almennt er val á stefnumótum frekar einsleitt en endar fólk oft á því að hittast yfir kaffibolla, fara í göngutúr eða ísbíltúr. Í dag eru möguleikarnir orðnir fjölmargir allt frá Salsakvöldi, yfir í bogfimi eða minigolf samkvæmt notendum Smitten.

„Við heyrðum af notanda sem fór á nýtt og öðruvísi Smitten stefnumót í formúlu 1 hermi þar sem þau þeyttust áfram og fengu að leyfa adrenalíninu að flæða. Það er því óhætt að segja að fólk sé að feta ótroðnar slóðir í vali á stefnumótum,” segir Unnur Aldís Kristinsdóttir, markaðsstjóri Smitten.

Smitten ákvað að setja saman lista af skemmtilegum deitum sem notendur hafa mælt með á sínum prófíl, en á Smitten er hægt að fylla út hvers konar deit einstaklingar kjósa sér helst að fara á.

Það er því um að gera að velja sér skemmtilegt deit af listanum og brjóta upp hversdagsleikann því nýtt ár býður upp á nýjar áskoranir, líka í ástarlífinu.

  • Axarkast
  • Improv Ísland
  • Hopp á trampolíndeit
  • Salsakvöld á Iðnó
  • Keramiknámskeið
  • Uppistand
  • Spiladeit í spilavinum
  • Sjósund í Nauthólsvík
  • Matreiðslunámskeið
  • Klifurhúsið
  • Formúlu kappaskstursnámskeið
  • Bogfimisetrið
  • Pubquiz á local bar
  • Kokteilaskólinn
  • Escape room
  • Bar crawling í miðbæ Reykjavíkur
  • Lautaferð í Heiðmörk
  • Mini golf
  • Lazertag
  • Skautadeit
  • Náttúrulaug
  • Mála blindandi í Courage Creative
  • Drykkur á ísbarnum í Reykjavík

Ótakmörkuð læk á Dating Sunday

Á Smitten eru sett takmörk á fjölda læka sem notendur geta gefið hverju sinni en í tilefni “Dating Sunday” verður gerð undantekning og geta notendur “lækað” ótakmarkað allan sólarhringin og því dagurinn tilvalinn til þess að prófa Smitten.

Tæp milljón notenda

Á síðustu 3 árum hefur notendum á Smitten fjölgað gríðarlega en tæplega milljón manns hafa sótt appið og hafa notendur lækað yfir 950 milljón sinnum. Smitten hefur skilað rúmlega 13 milljón mötchum og yfir 70 milljón skilaboðum.Smitten hefur verið áberandi í stefnumótaleiknum á Íslandi og fer ört stækkandi í Danmörku, Svíþjóð og Noregi sem eitt skemmtilegasta deiting appið á markaðnum í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×