Körfubolti

Full­komin nýting hjá Lebron sem varð elstur til að skora 40 stig

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Lebron James eldist vel
Lebron James eldist vel Photo by Ethan Miller/Getty Images

Lebron James varð elstur í sögu NBA deildarinnar til þess að skora 40 stig í einum leik í 120-129 sigri LA Lakers gegn Oklahoma City Thunder. 

Lebron James verður 39 ára gamall þann 30. desember næstkomandi, hann skoraði úr fimm af fimm skotum frá þriggja stiga línunni og hitti sömuleiðis öllum skotum sínum af vítalínunni. 

Með þessum sigri batt LA Lakers enda á taphrinu sína en liðið hafði tapað fjórum leikjum í röð fyrir þennan. Þeir yfirspiluðu Thunder frá fyrstu mínútu en slökuðu of mikið á undir lokin og misstu 26 stiga forystu niður í 10 stig. 

Þá tók Lebron völdin, skoraði 11 stig í röð fyrir Lakers og tryggði þeim sigurinn. 

Þeir sitja nú í 9. sæti vesturhluta NBA deildarinnar með 16 sigra og 14 töp. 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×