Sex leikja sigurhrina lærisveina Guðmundar á enda Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. desember 2023 19:11 Guðmundur Þórður Guðmundsson og lærisveinar hans í Fredericia höfðu unnið sex leiki í röð fyrir leik kvöldsins. Vísir/Andri Marinó Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í Fredericia þurftu að sætta sig við jafntefli er liðið tók á móti Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 25-25, en liðið hafði unnið sex leiki í röð fyrir leik kvöldsins.
Heimamenn í Fredericia byrjuðu mun betur og komust fljótt í fjögurra marka forystu í stöðunni 5-1. Gestirnir jöfnuðu þó metin í 7-7 og aftur í 8-8, en það voru þó heimamenn sem fóru með forystuna inn í hálfleikinn í stöðunni 12-10. Mors-Thy skoraði þó fyrstu sex mörk seinni hálfleiksins og náði fjögurra marka forystu. Lærisveinar Guðmundar söxuðu þó á forskot gestanna jafnt og þétt og náðu loks forystunni á ný þegar um fimm mínútur voru til leiksloka. Liðin skiptust þó á að skora á lokamínútunum og niðurstaðan varð að lokum jafntefli, 25-25. Einar Þorsteinn Ólafsson var á sínum stað í liði Fredericia og lagði upp eitt mark, en tókst ekki að skora sjálfur. Úrslitin þýða að Fredericia situr enn í öðru sæti dönsku deildarinnar, nú með 26 stig eftir 17 leiki, þremur stigum á eftir toppliði Aalborg sem á leik til góða. Á sama tíma mátti Íslendingalið Ribe-Esbjerg þola eins marks tap gegn Skanderborg, 27-26. Elvar Ásgeirsson skoraði tvö mörk fyrir liðið og Ágúst Elí Björgvinsson varði sex skot í markinu.
Danski handboltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira