Skoðun

Slátrun en ekki stríð – brúðu­leik­hús BNA

Pétur Heimisson skrifar

Það geisar ekki „stríð“ á Gaza þessa dagana. Stríð há herir og þau eru á milli herja. Hörmungarnar í Gaza eru einhliða slátrun, morð á morð ofan og að umtalsverðu leyti börn sem eru drepin. Slátrararnir ísraelskir hermenn, að miklu leyti ungt fólk, stýrt af gömlum körlum heima í Ísrael, körlum sem ráða yfir einum sterkasta her heimsins. Gegndarlaus dráp Ísraelshers hófust í kjölfar óafsakanlegra og hræðilegra voðaverka Hamas sem réðust inn í Ísrael, drápu og rændu saklausu fólki. Forsagan er mikið lengri og hófst í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Þá áttu Bandaríkin sinn stóra þátt í stofnun Ísraelsríkis þegar Gyðingum, fórnarlömbum nasista, var gefið land hvar aðrir bjuggu fyrir. Þar réðu bandarískir hagsmunir. Ekki þó hagsmunir almennings, heldur hins kapítalíska kerfis sem þar í landi ræður öllu og gerir þá ríku ríkari og fátækari fátækari. Þessa stefnu hafa Bandaríkin æ síðan útfært víða um heiminn, enda eru þau fremur HLUTAfélag en SAMfélag og þau eru ótrúlega mörg sem eiga ekki hlut í því félagi. Þetta hefur ráðið för gagnvart Ísrael og Palestínu allar götur síðan.

„Bandarískir hagsmunir“ ráða för

þeir hafa verið réttlæting og drifkraftur margra svokallaðra stríða frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Opinber réttlæting hefur verið í formi alls kyns fagurgala og hreinna lyga, en að tjaldabaki kúrðu mis augljósir „bandarískir hagsmunir“. Tökum dæmi. Mín kynslóð ólst upp við Víetnamstríð, viðbjóð sem stóð árum saman og var algjörlega á ábyrgð og í boði Bandaríkjanna. Salvador Allende, þjóðkjörnum forseta Chile, var steypt af stóli 1973, herforingjum komið til valda og óæskilegar raddir þúsunda saklausra borgara þaggaðar með fangelsunum, pyntingum og morðum, allt gert með velþóknun og tilstyrk Bandaríkjanna og vegna bandarískra hagsmuna. Ráðherrarnir Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson tóku ákvörðun, án samráðs, um stuðning við innrás í Írak. Því áttum við Íslendingar beina aðild að innrás bandarísks hers í Írak árið 2003 þar sem tugir til hundruð þúsunda almennra borgara voru drepnir. Réttlæting bandarískra stjórnvalda var að Írakar ættu gereyðingarvopn, sem reyndust sviðsettar lygar. Listi yfir árásir og ofbeldi í boði Bandaríkjanna er mun lengri og verðskuldar sérstök skrif.

Að fjarstýra barnadrápum

Ofbeldisverk Ísraelshers, ekki ísraelsku þjóðarinnar, undanfarna 2 mánuði verða ekki réttlæt sem sjálfsvörn vegna voðaverka Hamas þann 7. október sl. Þau eru þaulskipulögð dráp á saklausu fólki og annað markmið en þjóðarmorð vandséð. Allt þetta gerist þar sem Bandaríkin, með stuðningi sínum, leyfa því að gerast. Nú síðast með neitunarvaldi, þegar António Guterres freistaði þess að ná fram vopnahléi. Í aðdraganda innrásar í Írak fóru Bandaríkin að nota orðaleppinn „öxulveldi hins illa“. Verðskuldi eitthvert ríki og standi undir þeirri nafngift þá eru það Bandaríkin sjálf, ekki bandarískur almenningur, heldur þarlend stjórnvöld. Allt þetta þarf að segja, tala um og fordæma. Skipting okkar Íslendinga í fylkingar með og á móti Nató má ekki verða til þess að við segjum þetta ekki hátt og skýrt bæði við og um Bandaríkin. Ef við gerum það ekki þá erum við að horfa fram hjá því að það er með leyfi og liðstyrk bandarískra stjórnvalda sem Gaza hefur verið breytt í sláturhús sem kalla má fjarstýrt blóði drifið bandarískt brúðuleikhús.

Höfundur er læknir og situr í stjórn VG.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Al­einn í heiminum?

Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar

Sjá meira


×