Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar 29. október 2026 09:01 Umræðan í samfélaginu og á Alþingi um málefni útlendinga er mikilvæg og snertir öryggi samfélagsins, mannréttindi og framtíð Íslands. En það verður að ræða þessa hluti af yfirvegun, ábyrgð og virðingu og án þess að alhæfa eða setja alla útlendinga undir sama hatt. Það er nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld hafi skýra sýn og stjórn þegar kemur að landamærum landsins. Það skiptir máli að hafa yfirsýn yfir hverjir koma til landsins og að brugðist sé við þegar lög og reglur eru brotnar. Slík stjórn snýst ekki um tortryggni í garð fólks vegna uppruna þess, heldur um að tryggja öryggi, skapa réttlæti og traust. Við megum aldrei gleyma því að útlendingar eru ekki einn einsleitur hópur. Fólk kemur hingað til lands af ólíkum ástæðum. Margir eru að leggja sitt af mörkum til samfélagsins, sinna mikilvægum störfum og vilja skapa sér og fjölskyldum sínum betri framtíð. Við eigum að greina á milli þeirra sem eru samfélagslega ábyrgir og fylgja lögum og þeirra sem brjóta þau. Skipulögð glæpastarfsemi er sérstakt viðfangsefni sem stjórnvöld eru að takast á við með dómsmálaráðherra fremstan í flokki. Það er verið að byggja upp öfluga löggæslu um allt land, efla alþjóðlegt samstarf og sýna markviss viðbrögð við þeim sem misnota kerfið eða ógna öryggi almennings. Ábyrg stefna felst í því að beina aðgerðum að raunverulegri hættu en ekki heilu samfélagshópunum. Núverandi stjórnvöld eru að vinna í því að tryggja öruggt Ísland og byggja þá vinnu á mannúðlegri sýn sem sameinar ábyrgð, virðingu og traust á réttarríkinu. Það er m.a. gert með nýrri löggæsluáætlun sem dómsmálaráðherra hefur nú lagt fram, þar sem er lögð sérstök áhersla á öruggt og skilvirkt landamæraeftirlit og öflugt samstarf innanlands og milli landa. Það skiptir nefnilega máli að við stöndum við alþjóðlegar skuldbindingar. EES-samningurinn, Schengen-samstarfið og alþjóðleg mannréttindalög leggja okkur skyldur á herðar. Við eigum að virða þær og framfylgja þeim af festu. Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eiríkur Björn Björgvinsson Mest lesið Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Sjá meira
Umræðan í samfélaginu og á Alþingi um málefni útlendinga er mikilvæg og snertir öryggi samfélagsins, mannréttindi og framtíð Íslands. En það verður að ræða þessa hluti af yfirvegun, ábyrgð og virðingu og án þess að alhæfa eða setja alla útlendinga undir sama hatt. Það er nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld hafi skýra sýn og stjórn þegar kemur að landamærum landsins. Það skiptir máli að hafa yfirsýn yfir hverjir koma til landsins og að brugðist sé við þegar lög og reglur eru brotnar. Slík stjórn snýst ekki um tortryggni í garð fólks vegna uppruna þess, heldur um að tryggja öryggi, skapa réttlæti og traust. Við megum aldrei gleyma því að útlendingar eru ekki einn einsleitur hópur. Fólk kemur hingað til lands af ólíkum ástæðum. Margir eru að leggja sitt af mörkum til samfélagsins, sinna mikilvægum störfum og vilja skapa sér og fjölskyldum sínum betri framtíð. Við eigum að greina á milli þeirra sem eru samfélagslega ábyrgir og fylgja lögum og þeirra sem brjóta þau. Skipulögð glæpastarfsemi er sérstakt viðfangsefni sem stjórnvöld eru að takast á við með dómsmálaráðherra fremstan í flokki. Það er verið að byggja upp öfluga löggæslu um allt land, efla alþjóðlegt samstarf og sýna markviss viðbrögð við þeim sem misnota kerfið eða ógna öryggi almennings. Ábyrg stefna felst í því að beina aðgerðum að raunverulegri hættu en ekki heilu samfélagshópunum. Núverandi stjórnvöld eru að vinna í því að tryggja öruggt Ísland og byggja þá vinnu á mannúðlegri sýn sem sameinar ábyrgð, virðingu og traust á réttarríkinu. Það er m.a. gert með nýrri löggæsluáætlun sem dómsmálaráðherra hefur nú lagt fram, þar sem er lögð sérstök áhersla á öruggt og skilvirkt landamæraeftirlit og öflugt samstarf innanlands og milli landa. Það skiptir nefnilega máli að við stöndum við alþjóðlegar skuldbindingar. EES-samningurinn, Schengen-samstarfið og alþjóðleg mannréttindalög leggja okkur skyldur á herðar. Við eigum að virða þær og framfylgja þeim af festu. Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis.
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun