Skoðun

Til hvers ætlum við að virkja?

Andrés Kristjánsson skrifar

Viðskiptaráð vill rúmlega tvöfalda raforkuframleiðslu Íslands fyrir 2040, afnema rammaáætlun og fækka kæruleiðum. Raforkuöryggi og orkuskipti eru mikilvæg verkefni. En áður en framleiðslutalan verður að stefnu þurfum við að svara grundvallarspurningu:

Hvers vegna á tvöföldun raforkuframleiðslunnar að vera markmiðið áður en við höfum ákveðið til hvers orkan verði nýtt, hver njóti ávinningsins og hver fari með yfirráðin?

Færri hindranir tryggja ekki betri nýtingu. Óttinn við að missa fjárfestingu úr landi, svokallað FOMO, getur veikt samningsstöðu okkar og þrýst á ráðstöfun auðlinda áður en aðrir möguleikar hafa verið metnir. Háspá um eftirspurn er sviðsmynd sem þarf að rýna, ekki sjálfkrafa fyrirmæli um framkvæmdir.

Stjórnvöld eiga að virða afgreiðslufresti. Kæruréttur landeigenda og umhverfissamtaka er hins vegar réttarvernd sem verður ekki afgreidd sem óþarfa töf. Þegar leyfi er fellt úr gildi þarf líka að spyrja hvað brást við leyfisveitinguna.

Á árunum kringum 2012 voru álversáform í Helguvík og á Bakka hluti af framtíðarsýninni. Alcoa hætti við Bakka árið 2011 og vísaði til þess að ekki fengist næg orka á ásættanlegu verði og innan ásættanlegs tíma. Nýjar álvershugmyndir voru þó ræddar þar 2012. Í Helguvík tafði ágreiningur um orkusamninga framganginn. Erfiðar alþjóðlegar aðstæður torvelduðu jafnframt fjármögnun iðnaðaruppbyggingar. Sagan verður því ekki skýrð með regluverkinu einu.

Á yfirliti Landsvirkjunar frá mars 2012 voru fjórtán mögulegir virkjunarkostir og kostahópar með áætlað afl að meðaltali um 100 MW. Þeir voru á ólíkum undirbúningsstigum og yfirlitið náði einnig yfir kosti í bið- og verndarflokki. Við bættist Norðlingaölduveita, sem átti að auka orkugetu kerfisins.

Búðarhálsvirkjun, 95 MW, var þá í byggingu og 70 MW stækkun Búrfells í frumhönnun. Þetta var ekki áætlun um samtímis framkvæmdir, en yfirlitið sýnir umfangið. Að keyra mörg slík verkefni samhliða getur aukið þenslu og samkeppni um vinnuafl og innviði.

Hefðu bæði álverin risið værum við með fimm í stað þriggja og verulegt orkumagn bundið rekstri þeirra. Nýjar virkjanir hefðu aukið framboðið, en álverin jafnframt tekið við orkunni. Hvaða óvirkjaðir kostir væru þá eftir til að mæta nýjum þörfum? Það felast verðmæti í að geta valið síðar.

Fjárhagsleg aðlögun Landsvirkjunar skiptir líka máli. Skuldalækkun, styrking eigin fjár og minni fyrirsjáanleg fjárfestingarþörf sköpuðu svigrúm fyrir hærri arðgreiðslur. Það sannar ekki að tafir hafi valdið árangrinum. Það sýnir hvers vegna framkvæmdataktur og arður til þjóðarinnar verða að skoðast saman.

Margir kannast við eldri fartölvur með x86-örgjörva. Þegar viftan fór í gang var eins og einhver hefði sett hárblásara í gang og rafhlöðuendingin var ekki betri en svo að maður varð að vera nálægt innstungu ef maður ætlaði að koma einhverju í verk. Svo kom Apple með fartölvu með ARM-byggðum M1-örgjörva. Fartölvan vann hljóðlega án viftu og entist mun lengur á hleðslunni. Framfarirnar fólust í meiri afköstum úr hverju vatti. Sú hugsun á erindi í íslensk orkumál. Áður en við svörum hverri nýrri þörf með „við þurfum aðra virkjun“ eigum við að spyrja hvernig við fáum meiri verðmæti úr orkunni sem við höfum þegar.

Við eigum að forðast gámafiskshugsun í orkumálum. Magn orkunnar sem selt er segir ekki eitt og sér hversu mikil verðmæti sitja eftir hjá þjóðinni.

Áður en sprengt er fyrir næstu stíflu þarf að liggja fyrir ásættanlegt langtímamarkmið. Það þarf að byggjast á opinberu eignarhaldi, lýðræðislegu umboði, víðtækri sátt og skapa stöðugleika.

Höfundur er skrifstofufulltrúi hjá Reykjavíkurborg.




Skoðun

Sjá meira


×