Innlent

Ó­víst með fram­tíð Iceland Noir

Jakob Bjarnar skrifar
Yrsa Sigurðardóttir segir að hún og Ragnar Jónasson standi nú frammi fyrir þeirri spurningu hvort þau eigi að nenna að vera pólitísk hvítþvottastöð. Það eigi þau eftir að ræða nú þegar Icealand Noir er að baki.
Yrsa Sigurðardóttir segir að hún og Ragnar Jónasson standi nú frammi fyrir þeirri spurningu hvort þau eigi að nenna að vera pólitísk hvítþvottastöð. Það eigi þau eftir að ræða nú þegar Icealand Noir er að baki. vísir/vilhelm

Bókmenntahátíðinni Iceland Noir lauk á laugardaginn. Framkoma Hillary Clinton var síðan sérviðburður, laustengdur . Yrsa Sigurðardóttir, sem ásamt Ragnari Jónassyni, stóð fyrir hátíðinni segir framtíð hennar til athugunar.

„Við erum nú undir feldi. Við eigum eftir að hittast og ræða framhaldið. Við göngum ekki um gólf í einhverju sjokki, við eigum bara eftir að ræða þetta. Þetta sem átti að vera gleðilegt en virðist sem við séum orðin talsmenn einhverra stríðsátaka. Sem við erum ekki, en það er óþægilegt að vera í þeirri stöðu. Þetta er eins og það er,“ segir Yrsa í samtali við Vísi.

Eins og Vísir hefur greint frá myndaðist mikil andstaða meðal rithöfunda við hátíðina þegar spurðist að Hillary Clinton væri meðal þátttakenda. Sjötíu rithöfundar gáfu það út að þeir ætluðu að sniðganga hátíðina.

Yrsa tekur það skýrt fram að þau séu ekkert sturluð út í þetta fólk. Það eru miklar tilfinningar í þessu máli og það sé ágætt. Tveir sem til stóð að kæmu fram í pallborði drógu sig út, þau María Elísabet Bragadóttir og Pedro Gunnlaugur Garcia drógu sig út sem var högg í hóp þeirra sem komu fram.

Nenna varla að vera pólitísk hvítþvottastöð

Yrsa sagði að það sem átti að vera gleðilegt sé nú ekki og þau Ragnar séu helst á því á þessu stigi að snúa sér að einhverju öðru. Þetta er tíunda árið sem Iceland Noir er haldið en líklega 7. skiptið, því fyrstu árin var hátíðin haldin annað hvert ár. Þó víðtæk mótmæli hafi verið, og þau hafi fyrst og fremst haft áhrif á þá sem héldu hátíðina, vill Yrsa allt ekki að þetta komi út eins og hótun. Hún hefur fullan skilning á því að miklar tilfinningar séu í málinu.

Ragnar Jónasson. Þau Yrsa eiga eftir að setjast niður og fara yfir stöðuna.vísir/vilhelm

„Það er nóg af hátíðum í heiminum. Það þýðir ekki að vera í neinu hatri. Við höfum ekki tekið ákvörðun um hvort þetta verði að ári. Það er ekki útaf Hillary, heldur hvort við raunverulega nennum þessu, að vera sökuð um að vera pólitísk hvítþvottastöð. Þetta er bara ákvörðun sem ég er ekki að leggja á herðar eins né neins,“ segir Yrsa.

Ekkert að friðsamlegum mótmælum

Þrátt fyrir mótmælin var uppselt á hátíðina. Og svo gott sem fullur salur þegar Hillary kom fram, eftir að efstu sætin voru tekin úr sölu. „Það var bara fínt.“

En hafði þetta ekki áhrif á þann hlut hátíðarinnar?

„Jú, hún sá ekki mótmælin en varð vör við þau. Hún vissi hvað var að gerast. Þau fylgjast með því sem fer fram á samfélagsmiðlum. Og svo sem sláandi fyrir þá sem löbbuðu inn en þetta voru friðsamleg mótmæli og ekkert að því.“

Yrsa segir að öll þurfum við okkar pláss í þessu lífi, mismunandi skoðanir sem er af hinu góða og geti ekki leitt neitt af sér nema gott. 

„En okkur kom á óvart að við skyldum verða valin sem vettvangur. Maður verður bara að bera virðingu fyrir því sem öðrum finnst þó maður sé ekkert endilega alltaf sammála aðferðunum sem fólk er að.“


Tengdar fréttir

Gengu út af viðburði Clinton og mótmæltu

Hópur fólks mótmælti afstöðu Hillary Clinton stjórnmálakonu á viðburði á vegum Iceland Noir í hörpu í dag. Tvær konur stóðu upp úr sætum sínum í Eldborgarsal og flögguðu palestínska fánanum í mótmælaskyni. 

Ofbauð að Clinton fengi sviðið og afboðaði komu sína

Skipuleggjendur bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir eru miður sín vegna umræðu sem skapast hefur í kringum komu bandarísku stjórnmálakonunnar Hillary Clinton á viðburð tengdan hátíðinni. Þeir benda þó á að hátíðin snúist um bókmenntir - ekki pólitík. Rithöfundur sem hætti við að koma fram á Iceland Noir vegna afstöðu Clintons til vopnahlés á Gasa segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að sniðganga hátíðina.

Hillary Clin­ton gestur Ragnars og Yrsu á Iceland Noir

Yrsa Sigurðardóttir segir Iceland Noir ekki lengur litla glæpahátíð. Sérstakur viðburður verður degi eftir að hátíðinni lýkur í ár þar sem Hillary Clinton og Louise Penny ræða pólitíska spennusögu sína, Ríki óttans. Viðburðurinn fer fram þann 19. nóvember. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×