Erlent

Segj­a tugi falln­a eft­ir á­rás­ir á flótt­a­mann­a­búð­ir

Samúel Karl Ólason skrifar
Fólk sært eftir loftárás Ísraela flutt á sjúkrahús í dag.
Fólk sært eftir loftárás Ísraela flutt á sjúkrahús í dag. AP/Adel Hana

Tugir fólks er sagt hafa fallið í loftárásum Ísraela á flóttamannabúðirnar Jabaliya í norðurhluta Gasastrandarinnar. Ísraelski herinn hefur gert innrás á svæðið og segir um átta hundruð þúsund manns hafa flúið til suðurs.

Um 2,3 milljónir manna búa á Gasaströndinni, sem er eitthvað þéttbýlasta svæði heimsins. Meira en helmingur íbúa er sagður á vergangi vegna árása Ísraela. Stofnun Sameinuðu þjóðanna um málefni Palestínu (UNRWA) segir nærri því 672 þúsund manns halda til í skólum og sjúkrahúsum SÞ á svæðinu, samkvæmt AP fréttaveitunni.

UNRWA segir 64 starfsmenn hafa dáið á undanförnum vikum. Svo margir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna hafa aldrei áður látið lífið í átökum, svo vitað sé.

Samkvæmt yfirvöldum á Gasa, sem Hamas stýra, hafa minnst 8.525 fallið í árásum Ísraela. Innanríkisráðuneyti Gasastrandarinnar birti í dag myndir frá Jabaliya, sem eiga að sýna eftirmála loftárása Ísraela í dag.

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á nefndarfundi í öldungadeild Bandaríkjaþings í dag að vopnahlé á Gasaströndinni væri ekki á borðinu. Það myndi gefa Hamas-liðum tíma til að ná áttum á nýjan leik og fylla upp í raðir sínar og mögulega gera aðra árás á Ísrael.

Ráðherrann sagði einnig að ríkisstjórn Bandaríkjanna beitti ráðamenn í Ísrael þrýstingi varðandi það að íhuga mögulegt „mannúðarhlé“.

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir vopnahlé ekki koma til greina. Það er eftir að ísraelskum hermönnum tókst að frelsa hermann úr haldi Hamas. Netanjahú segir það sönnun þess að hægt sé að bæði uppræta Hamas og frelsa gíslana.

Sjá einnig: „Nú er tíminn fyrir stríð“

Leiðtogar Hamas hafa heitið því að frelsa gíslana í skiptum fyrir rúmlega fimm þúsund Palestínumenn sem eru í haldi Ísraela.

Ísraelski herinn tilkynnti í dag að talið væri að Hamas-liðar hefðu tekið að minnsta kosti 240 manns í gíslingu. Búið er að frelsa nokkra þeirra og talsmenn Hamas hafa sagt að gíslar hafi fallið í loftárásum. Óljóst er hve margir eru í haldi Hamas þessa stundina.

Ættingjar gíslanna hafa þrýst mjög á Netanjahú og aðra ráðamenn og

Sjá einnig: Segjast bæði geta útrýmt Hamas og frelsað gíslana

Harðir bardagar eru sagðir hafa átt sér stað í norðurhluta Gasastrandarinnar, þar sem ísraelskir hermenn hafa gert innrás.

Hamas birti í morgun myndband sem sýna á vígamenn samtakanna koma upp úr göngum og ráðast á hóp ísraelskra hermanna á Gasaströndinni.

Hamas-liðar eru sagðir hafa grafið umfangsmikið net ganga undir stóran hluta Gasastrandarinnar.

Vígamenn geta notað þessi göng til að flytja mannafla og hergögn um svæðið án þess að Ísraelar sjái til þess að koma aftan að ísraelskum hermönnum. Göng Hamas eru oft búin ljósavélum, loftræstingu, vatnsleiðslum og birgðum af mat.

„Vígamenn Hamas munu mynda smáa hópa sem munu stinga upp kollinum, gera árás á ísraelska hermenn og hverfa aftur ofan í göngin. Hamas mun einnig nota göngin til að fela og flytja eldflaugar,“ var skrifað í nýlega grein á vef bandarísku hugveitunnar Modern Warfare Institute.

Sjá einnig: Innrás yrði gífurlega erfið og framhaldið ekki síður

Ísraelar segja Hamas-liða grafa þessi göng sín undir sjúkrahús, skóla og aðrar byggingar þar sem þeir skýla sér á bakvið óbreytta borgara.

Fréttamaður rússneska ríkismiðilsins RT fékk árið 2021 að heimsækja göngin þar sem hann sýndi hvernig hluti þeirra lítur út. Uppfært: Myndbandið er frá árinu 2021 og var tekið upp þegar skammvinn átök blossuðu upp milli Hamas og Ísraela. Upprunalega stóð að það hefði verið tekið upp nýlega.


Tengdar fréttir

Segir aldrei hafa komið til greina hjá Noregi að sitja hjá

Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, segir aldrei hafa komið til greina að sitja hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun Jórdaníu um vopnahlé á Gasa á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hann segir hverja Norðurlandaþjóð verða að taka ákvörðun fyrir sig. Þjóðirnar séu þegar á heildina er litið sammála.

Fundu beinflís úr höfuðkúpu Shani

Móðir ungrar konu sem talið var að væri gísl Hamas-samtakanna hefur verið tilkynnt af yfirvöldum í Ísrael að hún sé látin. Talið var að Shani Louk væri ein af gíslum Hamas á Gasaströndinni en beinflís úr höfuðkúpu hennar hefur fundist. Móðir Shani staðfesti í gær að dóttir hennar væri látin.

Vilja öryggis­sveitir á vegum Sam­einuðu þjóðanna á Gasa

Stjórnvöld í Suður-Afríku hafa kallað eftir því að Sameinuðu þjóðirnar sendi öryggissveitir til Gasa til að vernda almenna borgara. Heilbrigðisyfirvöld á Gasa, sem stjórnað er af Hamas, segja 8.306 látna í árásum Ísraelshers.

Lík­ir Mið-Aust­ur­lönd­um við tif­and­i tím­a­sprengj­u

Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands, líkti Mið-Austurlöndum í morgun við tifandi tímasprengju. Þá hvatti talsmaður Ísraelshers íbúa norðurhluta Gasastrandarinnar til að flýja til suðurs en Ísraelar hafa gert gífurlega umfangsmiklar árásir á svæði nótt og í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×