Innherji

Laun ó­fag­lærðra hækkað mun hraðar en annarra stétta með fjölgun ferða­manna

Hörður Ægisson skrifar
Forstöðumaður Hagfræðistofnunar segir að aðstæður í efnahagsmálum með fjölgun ferðamanna hafa verið þannig um nokkurt skeið að verkalýðsforystan hefur metið það sem svo að það sé óhætt að hækka lægstu launin mikið án þess að það valdi aukningu í atvinnuleysi. „Íslenskur vinnumarkaður hefur ekki við,“ útskýrir hann.
Forstöðumaður Hagfræðistofnunar segir að aðstæður í efnahagsmálum með fjölgun ferðamanna hafa verið þannig um nokkurt skeið að verkalýðsforystan hefur metið það sem svo að það sé óhætt að hækka lægstu launin mikið án þess að það valdi aukningu í atvinnuleysi. „Íslenskur vinnumarkaður hefur ekki við,“ útskýrir hann. Vilhelm Gunnarsson

Launakjör ófaglærðra á Íslandi, sem eru nú þau bestu sem þekkjast í Evrópu, hafa batnað mun hraðar en annarra stétta frá aldamótum en kaupmáttur lágmarkslauna hefur þannig nærri tvöfaldast á meðan þeir sem eru með meistarapróf úr háskóla hafa upplifað nánast enga kaupmáttaraukningu, að sögn forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Meginskýringin að baki þessari þróun sé „eðlileg afleiðing“ af efnahagsástandinu þar sem aukinn straumur ferðamanna til landsins hafi búið til mikla sókn í ófaglært vinnuafl.


Tengdar fréttir

„Á­þreif­an­leg ruðn­ings­á­hrif“ vegna uppgangs í ferð­a­þjón­ust­u

Uppgangur ferðaþjónustu hefur stuðlað að litlu atvinnuleysi og sett mikinn þrýsting á aðra innviði, þar með talið húsnæðismarkað þar sem meirihluti nýs starfsfólks í ferðaþjónustu kemur erlendis frá, segir Seðlabankinn. Ruðningsáhrif atvinnugreinarinnar hafa því verið „á­þreif­an­leg“ en hún hefur um leið átt mestan þátt í að stuðla að batnandi viðskiptajöfnuði. 

Fram­leiðn­i stendur í stað og það „mun hafa á­hrif í kom­and­i kjar­a­við­ræð­ur“

Hagfræðingar segja að það sé áhyggjuefni að framleiðni á mann hafi ekki vaxið undanfarin ár og benda á að sú fjölgun starfa á vinnumarkaði sem hafi orðið sé að stórum hluta lágframleiðnistörf. Þessi staða mun hafa áhrif í komandi kjaraviðræðum, að sögn aðalhagfræðings Samtaka iðnaðarins, sem varar við því að með sama framhaldi verði ekki innstæða fyrir auknum lífsgæðum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×