Lífið

Upplifði að hann myndi aldrei aftur eiga breik í lífinu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sölvi opinberar eigið hugarástand á erfiðum tímum í bókinni.
Sölvi opinberar eigið hugarástand á erfiðum tímum í bókinni.

Sölvi Tryggva­son fjöl­miðla­maður lýsir stundinni þar sem hann upp­lifði að hann myndi aldrei eiga breik aftur í lífinu þar sem hann var staddur í Barcelona í Kata­lóníu árið 2021. Hann segir stundina hafa verið sína erfiðustu frá því hann lagðist inn á geð­deild á Ís­landi. Þá ræðir hann þá viðurkenningu sem hann þráði hjá konum.

Stundin er ein af þeim sem Sölvi lýsir í bók sinni Skuggar sem kemur út í dag. Þar segir Sölvi frá ör­laga­ríkum tímum í lífi sínu þegar þrjár konur kærðu hann fyrir kyn­ferðis­brot vorið 2021 eftir að hann grét í umtöluðu viðtali í eigin hlaðvarpsþætti. Málin hafa verið felld niður.

Í bókinni lýsir Sölvi lífi sínu á hispurs­lausan hátt og því hvernig hann ferðaðist til Barcelona í Kata­lóníu, til Mexíkó og Kólumbíu á tímum heims­far­aldurs í uppgjöri við atburðina.

Hjólaði burtu frá manni með hafna­bolta­kylfu

Sölvi lýsir því hvernig hann hafi á­kveðið að fara til Barcelona eftir að hafa dvalið hjá vinafólki úti í sveit í nokkra daga eftir fjölmiðla- og samfélagsmiðlastorm.

„Það er skrítið að ganga inn í flug­stöðina í Kefla­vík eftir að hafa verið í al­gjörum felum vikuna á undan. Ég óttast enn að teknar verði af mér myndir úr laun­sátri og er með tauga­kerfið gjör­sam­lega utan á mér þarna. Seinna átti ég eftir að geta hlegið að því hvað para­nojan var orðin mikil,“ skrifar Sölvi í bók sinni.

Hann lýsir því hvernig hann hafi loksins getað náð andanum eftir fyrstu nóttina sína í Barcelona. Sölvi opnar sig upp á gátt í bókinni og lýsir því að hann hafi oft átt erfitt með skap sitt í gegnum tíðina. Taugarnar hafi oft verið þandar í Barcelona og lýsir Sölvi því hvernig hann hafi eitt sinn átt í úti­stöðum við öku­mann í borginni í umferðaröngþveiti. Sjálfur var Sölvi á hjóli.

„Veg­far­endur og fólk í bílunum í kring horfir á í for­undran þegar hann stígur út úr bílnum, en í stað þess að ganga að mér fer hann í skottið og tekur þaðan út hafna­bolta­kylfu.“

Sölvi segist hafa hjólað í burtu á met­hraða. Ofan á reiðina hafi bæst við skömm yfir at­vikinu í bland við hugsanir um að ein­hver hafi verið með símann sinn og tekið upp mynd­band af honum að flýja mann með hafna­bolta­kylfu á götum Barcelona.

Fékk skila­boð um Sölva

„Þess í stað kemur nokkrum dögum síðar annars konar um­fjöllun um mig í ís­lenskum fjöl­miðlum. Hvorki meira né minna en fimm fjöl­miðlar birta þá frétt af því að ég sé að skokka á ströndinni í Barcelona. Ís­lensk kona hafði tekið mynd­band af mér í laumi og komið því í um­ferð.“

Sölvi rifjar upp að fjöl­miðlar hafi gert mynd­bandið að um­fjöllunar­efni sínu. Á sama tíma hafi hann ekki fengið einustu fyrir­spurn um mál sitt, jafn­vel þó hann væri með mikið af gögnum undir höndum til að skýra mál sitt. Sölva hafi þarna verið orðið ljóst að róin sem hann hafði verið að reyna að ná væri gufuð upp.

Hann rifjar upp að hann hafi fengið skila­bð frá vin­konu sinni sem hann hafði kynnst úti í Barcelona. Vinkonan hafi ekkert skilið í skilaboðunum.

„Hún sýnir mér símann og í honum eru skila­boð frá konunni sem kærði mig fyrir líkams­á­rás eftir að ég hringdi sjálfur í lög­regluna, og hóf fjöl­miðla­um­fjöllunina um mig. Í skila­boðunum sagði hún þessari konu, sem hún þekkti ekkert, að ég væri þekktur nauðgari frá Ís­landi, hefði mis­notað fjölda kvenna og allir á Ís­landi væru búnir að snúa við mér baki. Þá bað hún hana að segja mér alls ekki neitt, því hún væri að fylgjast með ferðum mínum og vildi ekki hætta á að ég lokaði á sig á sam­fé­lags­miðlum.“

Hafði sterka til­finningu um að ekkert skipti máli

Sölvi segist hafa fengið al­gjöra ó­raun­veru­leika­til­finningu. Hann hafi raun­veru­lega trúað því að manneskjan sem sendi skila­boðin sæi eftir því að hafa byrjað fjölmiðlaumfjöllun um hann og kært hann til lögreglu. Þarna hafi hann fengið stað­festingu á því að sú hafi ekki verið raunin.

„Ég er aug­ljós­lega ekki kominn af radarnum. Kæru hennar hafði ný­verið verið vísað frá og við­brögð hennar voru að fylgjast með ferðum mínum um heiminn og njósna um hvað ég væri að gera.“

Sölvi segir að eðli­leg við­brögð við of­beldi af slíku tagi væri að í­huga að kæra þetta til lög­reglu. Þarna hafi sjálfs­mynd hans hins vegar verið komin niður í kjallara.

Bók Sölva kemur út í dag. 

Hann hafi óttast að nýja vinkona hans í Barcelona sliti vinskapnum.

„Mín fyrstu við­brögð eru að segja við konuna að ég skilji það mjög vel ef hún vilji ekki tala við mig aftur. Við­brögð hennar koma mér á ó­vart: - Lastu ekki skila­boðin, Sölvi? Ef þessi kona óttaðist þig sem of­beldis­mann væri hún ekki að senda skila­boð eins og þessi. Þetta virkar á mig sem al­var­leg þrá­hyggja og elti­hrellis­hegðun.“

Sölvi segist hafa hringt í lög­fræðing sinn sem hafi tjáð sér að það væri ekkert sem hann gæti gert. Hann segir að hugsanir hafi sótt á sig um að allt væri búið.

„Ég verði of­sóttur á­fram, meira að segja þótt ég haldi til í öðru landi og á netinu verði haldið á­fram að dæma mig sem of­beldis­mann. Í fyrsta skipti í langan tíma hef ég mjög sterka til­finningu um að ekkert skipti máli í lífinu lengur. Í mínum huga eru flestir búnir að dæma mig úr leik. Fáir muni þora að standa með mér lengur og ég muni aldrei aftur fá breik á nokkru sviði.“

Hann segir að þegar hann horfi til baka þakki hann guði fyrir að hann sé ekki hvat­vís. Að hann sé ekki haldinn sterkri sjálfs­eyðingar­hvöt.

„Vegna þess að næstu þrjá daga eftir þetta var til­gangs­leysið full­komið. Mér leið raun­veru­lega eins og allar mínar til­raunir til að byggja mig upp og gera eitt­hvað rétt væru von­lausar.“

Tifandi tímasprengja

Sölvi ræðir fleira í bókinni, meðal annars stjórnleysi sem geti komið í bakið á manni þegar maður eigi síst von á því, eins svo margt annað. 

„Þó að það hafi verið víðsfjarri mér að geta átt von á þeim hvirfilbyl sem reið yfir í byrjun maímánaðar 2021, og ég hafi ekki á neinn hátt átt skilið allar þær lygar sem voru sagðar um mig opinberlega, var það kannski óhjákvæmilegt að það væri skellur fram undan. Þegar ég horfi til baka sé ég að ég var á ákveðinn hátt tifandi tímasprengja. Ekki af því að ég væri að gera einhverja hræðilega hluti alla daga heldur vegna þess að stjórnleysið var taumlaust.“ 

Sem þjóðþekktur einstaklingur í litlu landi geti maður ekki ástundað þá hegðun sem hann sýndi af sér án afleiðinga.

„Ég var fíkill í viðbrögð frá konum og jafnvel þó að ég hafi þegar verið búinn að leita mér aðstoðar var ég ekki enn orðinn fullkomlega heiðarlegur um ástandið á mér. Ég sé úr baksýnisspeglinum að meira að segja inni í tólf spora samtökum og hjá þerapistum vildi ég alltaf fá að halda smá hluta fyrir sjálfan mig sem ég segði engum. Það virkar einfaldlega ekki ef vel á að fara. Ég sá þetta á einhvern hátt þannig að ég væri einhleypur og væri ekki að skaða neinn þó að ég setti mig í samband við fullt af konum. En þegar ég skoða það betur sé ég að ég var í raun bullandi óheiðarlegur bæði við sjálfan mig og aðra. Ég seldi mér að stjórnleysið væri mun minna en það var í raun, auk þess sem óheiðarleiki á einu sviði mun óhjákvæmilega færast yfir á önnur svið lífsins.“

Stjórnlaus í kvennamálum

Sölvi segist hafa farið mjög vel og vandlega yfir hegðun sína með hjálp fagaðila og mikilli sjálfsvinnu, auk þess sem hann eigi marga vini sem séu ekki meðvirkir með sér. Hann hafi komist að ákveðinni niðurstöðu.

„Ég hef verið algjörlega stjórnlaus í kvennamálum á löngum köflum. Birtingarmyndin er fyrst og fremst mikil þörf fyrir viðurkenningu. Ég hef kannski sofið hjá færri konum en ætla mætti miðað við það sem ég er að segja, en ég ætla ekki einu sinni að reyna að þræta fyrir þann ótrúlega fjölda textaskilaboða sem ég hef sent konum og það gríðarlega magn af samskiptadaðri sem ég hef stundað. Ég hef líklega farið á fleiri stefnumót en flestir myndu ná á nokkrum æviskeiðum. Skekkjan sem verður til í svona miklu stjórnleysi getur ekki annað en brenglað dómgreindina og endað með því að maður verður eitthvað allt annað en besta útgáfan af sjálfum sér. Það er auðvelt fyrir mig að sjá það núna að stjórnleysið var miklu meira en ég gerði mér grein fyrir þá. Jafnvel þó að maður sé bara að daðra og það virki saklaust er það í raun friðlaust ástand að vera stanslaust í samskiptum af því tagi við margar konur á sama tíma. Það tekur miklu stærri hluta af tíma manns og orku en maður gerir sér grein fyrir, ruglar mann í hausnum og brenglar dómgreindina. Síðast en ekki síst lokar það algjörlega á innsæið, sem hefur átt svo stóran þátt í að skapa jákvæða hluti í mínu lífi. Það er ekki hægt að hlusta af alvöru á innsæið ef taugakerfið er í stanslausri spennu. Fíkn hefur áhrif á öll viðmið hjá fólki, sama hvað það býr yfir góðum gildum.“

Ef hann horfi af heiðarleika til baka sjái hann að stór hluti af lífi hans hafi markast af mikilli spennufíkn og einangrunarhegðun. Þetta tvennt haldist mjög vel í hendur, þar sem mikil fíkn í spennu skaði tengingar við annað fólk.

„Þegar ég byrjaði að moka mig upp úr holunni sem ég var kominn ofan í eftir atburðarásina vorið 2021 varð ég að skoða ofan í kjölinn hvernig þetta gat gerst. Hvers vegna var ég svona fíkinn í spennu og hvers vegna ástundaði ég þessa tegund af hegðun í svona mörg ár?“

Sölvi kafar ofan í ástæður fyrir fíkninni í nýju bókinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×