Jafnt í Íslendingaslag og gott gengi Melsungen heldur áfram Smári Jökull Jónsson skrifar 24. september 2023 16:20 Ómar Ingi Magnússon Íslendingaliðin Leipzig og Magdeburg gerðu jafntefli í spennandi leik í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Þá er Melsungen áfram á sigurbraut.
Fyrir leikinn í dag hafði Melsungen unnið sigur í öllum leikjum sínum í þýsku úrvalsdeildinni til þessa og meðal annars lagt meistara Kiel að velli. Í dag mætti liðið Lemgo á útivelli og leiddi nánast frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Lemgo tókst reyndar að jafna metin í 19-19 um miðjan síðari hálfleik en Melsungen var ekki lengi að svara og tryggði sér sanngjarnan sigur í lokin. Lokatölur 28-25 og Melsungen því áfram í efsta sæti deildarinnar. Elvar Örn Jónsson skoraði sex mörk fyrir Melsungen í dag. Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað en lét til sín taka í vörninni og var einu sinni rekinn út af í tvær mínútur. Í Leipzig var síðan sannkallaður Íslendingaslagur. Rúnar Sigtryggsson er þjálfari heimaliðsins og Andri Már sonur hans sem og Viggó Kristjánsson leikmenn liðsins. Magdeburg var í heimsókn en þar eru á mála Ómar Ingi Magnússon, Janus Daði Smárason og Gísli Þorgeir Kristjánsson en sá síðastnefndi er frá vegna meiðsla. Magdeburg byrjaði mun betur, komst í 10-4 í upphafi og leiddi 15-10 í hálfleik. Heimaliðið svaraði hins vegar fyrir sig í síðari hálfleik. Þeir minnkuðu muninn jafnt og þétt og tókst loks að jafna metin í 26-26 þegar rúmar fimm mínútur voru eftir. Lokamínúturnar voru æsispennandi. Leipzig komst í 27-26 en Ómar Ingi jafnaði fyrir Magdeburg þegar rúm mínúta var eftir. Bæði lið fengu sóknir til að skora sigurmarkið en tókst ekki. Lokatölur 27-27. Viggó skoraði sex mörk fyrir Leipzig í dag og Andri Már tvö. Ómar Ingi skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg og Janus Daði eitt. Magdeburg er í þriðja sæti deildarinnar eftir jafntefið en Leipzig í þrettánda sæti.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira